
- Details
- Gunnar Páll Leifsson
Það var eitt sinn þegar ég var að kvarta yfir umferðinni á leiðinni í vinnuna á morgnana að yfirmaður minn Óskar Dýrmundur, spurði hvers vegna ég hjólaði ekki bara? Þvílík og önnur eins fásinna hugsaði ég, maðurinn er ekki með öllum mjalla (sorrý Óskar). Hlustaði sem sagt ekki á þetta.

- Details
- Árni Davíðsson
Á síðasta ári fékk undirritaður styrk frá Rannsóknarsjóði vegagerðarinnar í samvinnu við Hörð Bjarnason á verkfræðistofunni Mannvit til að gera skýrslu um öryggisskoðun hjólastíga. Hörður hafði veg og vanda að ritun skýrslunnar en ég gerði öryggisúttektir á nokkrum hjólastígum á höfuðborgarsvæðinu. Skýrslan er nú komin út og er hún aðgengileg á heimasíðu Vegagerðarinnar og frá heimasíðu Landssamtaka hjólreiðamanna ásamt með skýrslum yfir öryggisúttektir.

- Details
- Árni Davíðsson
Hjólafærni á Íslandi hefur undanfarin ár boðið upp á ýmis konar hjólatengda þjónustu fyrir fyrirtæki, stofnanir og almenning. Meðal annars er boðið upp á hjólatengda fyrirlestra, hjólaviðgerðarnámskeið, kennslu í hjólafærni og síðast en ekki síst, hjólaskoðun Dr. BÆK. Markmið félagsins er að efla hjólreiðar á landinu og bæta hjólreiðamenningu í víðum skilningi. Heimasíðan er hjólafærni.is.

- Details
- Morten Lange
Það er gott að fjölmiðlar, fræðimenn, embættismenn og opinberar stofnanir sýni hjólreiðum áhuga. Mikið hefur verið fjallað um aukna tíðni slysa meðal hjólandi en því miður ekki minnst á samhengi hlutanna, sem er að hjólreiðar hafa aukist meira en slysin og þeim hefur því hlutfallslega fækkað.

- Details
- Morten Lange
Flestir kannast nú orðið við Druslugönguna þar sem boðskapurinn er sá að konur eiga ekki að þurfa að klæða sig með það í huga að minnka hættuna á að verða fyrir kynferðislegu ofbeldi eða jafnvel nauðgun. Á ensku er talað um „victim blaming“. Dómarar, lögreglumenn og blaðamenn hafa stundum látið að því liggja að kona sem var nauðgað eigi að einhverju leiti sök á því sjálf hvernig fór, vegna „ögrandi klæðaburðar“ eða hegðunar og ábyrgðinni þannig varpað á þolandann.

- Details
- Hjálmar Sveinsson
Mikið var hjólreiðaráðstefnan, sem haldin var í Iðnó í samgönguvikunni síðasta haust undir heitinu Hjólað til framtíðar, vel heppnuð. Klaus Bondam fyrrum borgarstjóri og núverandi formaður dönsku hjólreiðasamtakanna, flutti áhugavert erindi um „dönsku leiðina“. Hann hjólaði um borgina, hitti borgarstjóra, sagði að góður árangur hefði náðst í hjólastígagerð í Reykjavík undanfarin ár en það mætti bæta um betur og gera hjólreiðar að enn sýnilegri samgönguvalkosti.

- Details
- Haukur Eggertsson
Að hjóla Kjalveg hefur verið vinsælt meðal bæði innlendra og erlendra hjólreiðamanna. Auðvelt er að skilja af hverju lagt er á þennan veg. Þarna eru engar óbrúaðar ár sem heitið getur, fjöldi skála og gistimöguleika eru á svæðinu, rútur ganga þarna reglulega um, landslagið er stórbrotið á milli jöklanna þegar til þeirra sést og laugin á Hveravöllum nauðsynlegur áfangastaður til þess að slaka á og hreinsa sig eftir afrek ferðarinnar.

- Details
- Páll Guðjónsson
Það er áætlað að á Bretlandseyjum látist 29.000 manns um aldur fram vegna loftmengunar og þar af 4.300 í London. Nýlega var fjallaði The Guardian um tilraun sem borgarstjórn Camden, King’s College London og the Healthy Air Campaign framkvæmdu í miðborg Lundúna. Þar var mælt hvort þeir sem nýttu sér mismunandi fararmáta önduðu að sér jafnmikilli mengun og niðurstöðurnar sýndu afgerandi mun.
- Details
- Páll Guðjónsson
Það er árangursríkara að hvetja en skipa fyrir og með það að leiðarljósi stóðu Landssamtök hjólreiðamanna og Hjólafærni á Íslandi fyrir jákvæðu átaki síðasta desember til að hvetja fólk til að huga að ljósabúnaði reiðhjólsins. Fylgst var með ljósabúnaði þeirra sem leið áttu framhjá og ef vantaði ljós að framan eða aftan var því kippt í liðinn á staðnum af vösku liði sjálfboðaliða sem settu ljós á hjólin. Það tók þó dágóða stund að koma öllum ljósunum út því flestir voru alveg til fyrirmyndar í umferðinni. Reiðhjólaverslunin Örninn gaf fimmtán sett af fram- og afturljósum í átakið.

- Details
- Ómar Smári Kristinsson
Þetta árið eru mér hjólreiðar í bland við bílaumferð hugleiknar. Ástæðan er sú að við öflun gagna í næstu Hjólabók var ég á svæði sem margir hjóla um og enn fleiri keyra um. Næsta bók fjallar sem sagt um Árnessýslu. Til að fá smá forsmekk af bókinni, þá er hér birtur kafli um sýsluna og helsta vandamál hennar, útfrá sjónarhóli hjólreiðamannsins:
- Details
- Freyr Ólafsson
Ein frá fyrra ári
Í brjósti ég kenni um bílstjóra þá,
er í biðröðum hnussandi dóla.
Síðar þeir vonandi vitkast smá
og venja sig á það að hjóla.
7. janúar
Er steig á hjólið stirt var geð,
stirður var og loppinn.
Á skýi nú svíf vil syngja með,
með sælu hlaðinn kroppinn.
8. janúar limra
Seint gekk mér sækló á krossi,
áfram siluðust teinar á hrossi,
Eftir hnoð og hark,
ég hlýju við mark,
fagna sem heims mesta hnossi.
9. janúar
Á leiðinni heim ég lagðist á stýrið og stundi.
,,Stíf er brekkan, leiðinda klaki og grjót”.
Á ásnum hæst þá aftur kættist, mundi,
að eftir raun er léttara niður í mót.
13. janúar
Í borginni er hobbý að bíða í röð,Smá klassískur kveðskapur
belginn að strjúka á ljósum.
En við hjólarar framhjá glettin og glöð,
gangstíga renna kjósum.

- Details
- Ásbjörn Ólafsson
Í reglum í skattmati er launagreiðendum gert kleift að borga launþegum að hámarki kr. 7.000.- á mánuði vegna ferða milli heimilis og vinnustaðar að því gefnu að undirritaður sé formlegur samningur um að launþegi nýti almenningssamgöngur eða vistvænan ferðamáta. Launþegum/stéttarfélögum er einnig heimilt að greiða allt að kr. 55.000.- fyrir heilsurækt skv. ákveðnum skilyrðum þar um. Þetta eru þær upphæðir sem eru undanþegnar skatti en upphæðir umfram það teljast skattskyldar.

- Details
- Sesselja Traustadóttir
Ferðamenn sem fara á reiðhjólum um landið hafa tekið fagnandi á móti kortinu Cycling Iceland. Það kom fyrst út árið 2013, þar sem reynt var að draga saman alla hjólaþjónustu landsins og síðan kom út virkilega skemmtilegt kort 2014, þar sem unnið var mun ítarlegra og sérhæfðara landskort með nauðsynlegum upplýsingum fyrir hjólandi ferðamann.

- Details
- Páll Guðjónsson
Undanfarin fjögur ár hafa verið haldnar nokkrar afar metnaðarfullar hjólaráðstefnur sem LHM og Hjólafærni á Íslandi hafa staðið fyrir eða komið að. Margir erlendir gestir hafa heimsótt Ísland í tengslum við þessar ráðstefnur auk fjölda íslenskra fyrirlesara. Allt hefur þetta verið tekið upp og er hægt að horfa eða hlusta á þessa fyrirlestra á vef Landssamtaka hjólreiðamanna lhm.is

- Details
- Árni Davíðsson
Frumvarp til breytinga á umferðarlögum var lagt fram á Alþingi í haust. Í því voru m.a. lagðar til breytingar á skilgreiningum og reglum um svo kallaðar rafvespur eða rafskutlur, sem heita samkvæmt frumvarpinu „létt bifhjól í flokki 1”, það eru tæki sem ekki komast hraðar en 25 km/klst. (hér eftir kallaðar skutlur).
Fleiri greinar...
Kveðskapur
Hér er safn af kveðskap um hjólið sem hefur birst í fréttabréfum klúbbsins í gegnum tíðina.