Má þar minnast á Klaus Bondham formann Landssamtaka hjólreiðamanna í Danmörku sem Íslendingar geta lært margt af. Uppáhalds glæran hans fjallaði um hvernig kannanir sýndu meiri hamingju meðal þeirra sem hjóluðu en þeirra sem notuðu aðra fararmáta. Einnig höfum við fengið fleiri sérfræðinga frá Danmörk, Hollandi, Þýskalandi og víðar að sem allir hafa flutt afar athyglisverð erindi auk hinna íslensku. Látið þetta ekki framhjá ykkur fara.
-Páll Guðjónsson
Hjólhesturinn 1. tbl. 24. árg. mars 2015