- Details
- Hrönn Harðardóttir
Þriðjudagskvöldferðirnar hafa verið á dagskrá síðan 1997. Dagskráin er fjölbreytt en með hækkandi aldri þátttakenda hefur lengd og erfiðleikastig lækkað jafnt og þétt. Og við förum klukkutíma fyrr af stað. Enda stefnt að því að allir séu komnir heim í ból á kristilegum tíma.
- Details
- Ómar Smári Kristinsson
Eitt af því sem Frakkland er þekkt fyrir eru hjólreiðar. Hver kannast ekki við Tour de France? Rómantískar og nostalgískar myndir af Frakklandi eru fullar af reiðhjólum. París er umtöluð vegna stefnu borgarstjórnar að breyta henni úr bílaborg í hjólaborg í stíl við Kaupmannahöfn og Amsterdam. Gott orð fer af ýmsum fleiri borgum, svo sem Strassborg og Grenoble. Nærri helmingur EuroVelo leiðanna liggur í gegnum Frakkland. Frakkar áttu stóran þátt í að finna upp og þróa reiðhjólið (fyrsta pedaladrifna hjólið var franskt). Hjólreiðar hafa verið eðlilegur hluti hversdagslífs almennings í Frakklandi í eina og hálfa öld. Í Frakklandi eru margir klúbbar og félög sem tengjast hjólreiðum. Fjöldi bóka hefur verið ritaður um hjólaleiðir í Frakklandi.
- Details
- Birgir Birgisson
Sumarið 2025 fór í fyrsta skipti fram íslensk útgáfa af viðburðinum Chase The Sun (Eltum sólina). Í stuttu máli er þetta persónuleg áskorun, ekki keppni, sem snýst um að hjóla frá austurströnd þátttökulands að vesturströnd sama lands á lengsta degi ársins, sumarsólstöðum. Upphafið má rekja til ársins 2008, þegar enski arkitektinn Oliver Moore fór að velta því fyrir sér hversu langt hann væri fær um að hjóla á einum degi í hjólatúr þar sem áherslan væri á góða upplifun en ekki endilega sem mestan hraða. Eftir nokkrar tilraunir með vinum sínum þar sem hann hjólaði frá austurströnd Englands við sólarupprás að vesturströndinni fyrir sólsetur, varð svarið: „Um það bil 200 mílur (320 kílómetra)“.
- Details
- Páll Guðjónsson
Já, ansi dramatískur titill, en þjóðgarðurinn heitir jú Hell’s Gate. Hell’s Gate National Park er þjóðgarður í suðurhluta Kenýa, um 90 km norðvestur af Nairobi, við suðurenda Naivasha-vatns í Great Rift Valley. Garðurinn er þekktur fyrir dramatískt eldfjallalandslag, brattar gjár og jarðhita og er einn fárra safarígarða í Kenýa þar sem gestir geta gengið eða hjólað um svæðið án þess að vera í bíl.
- Details
- Hrönn Harðardóttir
Þegar þriðjudagskvöldferðunum var að ljúka sumarið 2025 ákváðum við að kanna áhuga fólks á að hjóla saman á laugardögum í vetur. Ferðirnar eru þannig lagað ekki skipulagðar, nema fólki gefist kostur á að taka að sér forystu einhvern laugardaginn. Skiljanlega er fólk ekki til í margra klukkutíma hjólatúra í myrkri, kulda, ís og snjó, svo við höfum hjólað í um klukkutíma og síðan stungið okkur inn í bakarí til að fá okkur í gogginn áður en fólk hjólar aftur heim til sín. Mætingin hefur verið framar öllum vonum. Sextán manns mættu í fyrstu hjólaferðina, laugardaginn 20. september, þrátt fyrir að kuldinn biti í kinnarnar.
- Details
- Ómar Smári Kristinsson
Fyrir mann sem hjólar þúsundir kílómetra á Íslandi á ári hverju er draumur að fá að prófa að hjóla í öðrum löndum. Ég og vinur minn og nágranni , Pétur Hilmarsson á Ísafirði, höfum lengi átt þann draum að fara í hjólreiðatúr um Belgíu og smakka á nokkrum þeirra óteljandi bjóra sem þar eru bruggaðir. Svo liðu árin og aldrei var til nóg af tíma og peningum.
- Details
- Anna Magnúsdóttir
Síðasta sumar átti ég erindi norður í Skagafjörð og ákvað að fara hjólandi heiman að úr Reykjavík og yfir Kjöl. Ferðinni var heitið að Löngumýri sem er skammt frá Varmahlíð. Þjóðkirkjan rekur fræðslusetur á Löngumýri þar sem áður var húsmæðraskóli. Ég var á leiðinni á kristilegt mót sem átti að byrja með kvöldmat á föstudegi og lagði af stað á mánudagsmorgni klukkan tíu úr 108 Reykjavík.
- Details
- Morten Lange
Nýverið var fór fram mat á árangri hjólreiðastefnu Oslóarborgar 2015-2024. Mér er ekki kunnugt um að sambærileg óháð úttekt hafi verið gerð á Íslandi en kannski gæti þessi skýrsla veitt innblástur fyrir gerð svipaðrar skýrslu um hjólreiðastefnu Reykjavíkur eða annarra bæjarfélaga.
- Details
- Hrönn Harðardóttir
Sumarið 2024 var ekki beint útilegusumar, grenjandi rigning flesta daga og tjaldsvæðin á floti. Þegar ég skipulegg útilegur, þá fer ég ekki af stað nema ég fái sæmilega þurrt veður í 3-4 daga. Miða við að ég sé á bíl og geti elt góða veðrið með hjólið aftan á. En vegna slitgigtar get ég ekki keyrt nema 2-3 tíma á dag án þess að liggja emjandi í 2-3 daga á eftir. Þá má vindstyrkur ekki vera meiri en svo, að 35 ára gamla göngutjaldið mitt þoli rokið.
- Details
- Ómar Smári Kristinsson
Í Hjólhestinum sem kom út árið 2021 er grein eftir Tyler Wacker. Í henni lýsir hann leið sinni í skólann, þegar hann hjólaði frá San Fransiskó til Ísafjarðar. Hér á eftir kemur framhaldssagan. Tyler settist svo sannarlega ekki í helgan stein þó hann settist á skólabekk. Hann hefur sett stóran svip á íslenskt hjólasamfélag, einkum og sér í lagi á Vestfjörðum.
- Details
- Hrönn Harðardóttir
Þriðja eldgosið á Reykjanesskaganum hófst í júlí 2023. Þar eð ég komst bara einu sinni upp að gosinu í Meradölum árið 2022, þá fór ég eins oft og ég gat að þessu gosi, eða 5 sinnum. Fyrstu þrjár ferðirnar voru töluvert undir væntingum. Í fyrstu ferðinni voru svo miklir gróðureldar og reykur að ég sá nánast ekki neitt.
- Details
- Örlygur Steinn Sigurjónsson
Siglufjarðarskarð. Nafngiftin ein og sér ýtir við manni. Skarð, hátt og tilkomumikið, torsótt, þrungið sögu, sorgum og sigrum. Nauðsynleg samgönguæð eitt sinn, alræmt veðravíti, tenging við umheiminn sem ávallt skyldi umgangast með tilhlýðilegri virðingu. Vestan skarðs er bærinn Að Hraunum í Fljótum og svo auðvitað Siglufjörður austan. Siglfirðingar fyrr á tíð biðu þess með eftirvæntingu að opnað yfir skarðið á vorin og fóru þá bílar af öllum stærðum yfirum, nokkuð sem nútímamanni finnst harla mergjuð tilhugsun.
- Details
- Páll Guðjónsson
Það birtist frétt í vetur um straum flóttamanna frá Rússlandi inn í Finnland og flestir þeirra komu hjólandi að landamærunum. Þetta kallaði fram minningar um skemmtilega hjólaferð sem ég og Frosti Jónsson fórum 2010 frá Helsinki í Finnlandi, að þessum sömu landamærum inn í Rússland til Péturborgar, þaðan í gegnum Eistland, Lettland, Litháen og til Varsjár í Póllandi.
- Details
- Hrönn Harðardóttir
Oft fer ég vestur á Ísafjörð, enda ættuð þaðan og tek iðulega reiðhjólið með. Það hefur margt breyst á Ísafirði síðan ég var krakki. Þá voru engar gangstéttar, allir deildu holóttum malargötum, akandi, gangandi og hjólandi. Engir voru hjálmarnir og fötin voru flauelsbuxur og lopapeysa. Ég hef gaman af því að hjóla ein og upplifa náttúruna, en nú langaði mig að fá félagsskap. Hafði samband við Ómar Smára sem er fararstjóri hjá Ferðafélagi Ísfirðinga og spurði hvort það væri nokkuð hjólaferð á dagskrá um páskana.
- Details
- Hrönn Harðardóttir
Það er hætt við að fólk hjóli alltaf sömu leið. Þar eð ég bý nálægt Miklubraut, þá er það algengasta hjólaleiðin mín. Ég vel þó oft Suðurlandsbraut fram yfir vegna aðskilinna göngu og hjólaleiða. Þá fer ég stundum lengri leið og hjóla í gegn um Fossvoginn ef ég á erindi vestur í bæ eða upp í Breiðholt. Þar er góð aðskilin hjólabraut alveg frá Breiðholti alla leið vestur í bæ. Vissulega með köflum þar sem deila þarf stíg með gangandi og stundum með ökutækjum, þá með hjólavísum á götunni.
- Details
- Ómar Smári Kristinsson
Ferðafélög landsins hafa boðið upp á hjólreiðaferðir lengi. Hefðin er rík hjá Útivist. Í allnokkur ár hélt félagið úti svokallaðri Hjólarækt, þar sem hjólað var á laugardögum á veturna á höfuðborgarsvæðinu og svo farið í lengri túra á sumrin. Um þessar mundir eru ferðir hjónanna Páls Ásgeirs Ásgeirssonar og Rósu Sigrúnar Jónsdóttur, hjá Ferðafélagi Íslands afar vinsælar og vel sóttar. Deildir Ferðafélags Íslands hafa af og til boðið upp á hjólreiðaferðir. Ein þeirra er Ferðafélag Ísfirðinga.
Fleiri greinar...
- Svíþjóð – Danmörk 2022
- Skipt um grip gírskipta - myndband
- Vestfjarðaleiðin - Cycling Westfjords
- Klúbbhúsið málað, aftur og aftur
- Stefnumótun varðandi smáfarartæki í umferðinni
- Reiðhjól - rannsóknir og reynsla
- Hjólavottun vinnustaða, mjúk aðgerð fyrir bjartari framtíð
- Úthlíð - ferðamennska að vetri
- Selfoss - Hellisskógur - dagsferð 20. nóv. 2021
- 2021 - Höskuldarvellir - Spákonuvatn - Sogin
Kveðskapur
Hér er safn af kveðskap um hjólið sem hefur birst í fréttabréfum klúbbsins í gegnum tíðina.