- Details
- Ásbjörn Ólafsson
Í reglum í skattmati er launagreiðendum gert kleift að borga launþegum að hámarki kr. 7.000.- á mánuði vegna ferða milli heimilis og vinnustaðar að því gefnu að undirritaður sé formlegur samningur um að launþegi nýti almenningssamgöngur eða vistvænan ferðamáta. Launþegum/stéttarfélögum er einnig heimilt að greiða allt að kr. 55.000.- fyrir heilsurækt skv. ákveðnum skilyrðum þar um. Þetta eru þær upphæðir sem eru undanþegnar skatti en upphæðir umfram það teljast skattskyldar.
- Details
- Sesselja Traustadóttir
Ferðamenn sem fara á reiðhjólum um landið hafa tekið fagnandi á móti kortinu Cycling Iceland. Það kom fyrst út árið 2013, þar sem reynt var að draga saman alla hjólaþjónustu landsins og síðan kom út virkilega skemmtilegt kort 2014, þar sem unnið var mun ítarlegra og sérhæfðara landskort með nauðsynlegum upplýsingum fyrir hjólandi ferðamann.
- Details
- Páll Guðjónsson
Undanfarin fjögur ár hafa verið haldnar nokkrar afar metnaðarfullar hjólaráðstefnur sem LHM og Hjólafærni á Íslandi hafa staðið fyrir eða komið að. Margir erlendir gestir hafa heimsótt Ísland í tengslum við þessar ráðstefnur auk fjölda íslenskra fyrirlesara. Allt hefur þetta verið tekið upp og er hægt að horfa eða hlusta á þessa fyrirlestra á vef Landssamtaka hjólreiðamanna lhm.is
- Details
- Árni Davíðsson
Frumvarp til breytinga á umferðarlögum var lagt fram á Alþingi í haust. Í því voru m.a. lagðar til breytingar á skilgreiningum og reglum um svo kallaðar rafvespur eða rafskutlur, sem heita samkvæmt frumvarpinu „létt bifhjól í flokki 1”, það eru tæki sem ekki komast hraðar en 25 km/klst. (hér eftir kallaðar skutlur).
- Details
- Páll Guðjónsson
„Fyrstu fregnir af notkun reiðhjóla á Íslandi birtust í tímaritinu Fjallkonunni árið 1887. Greinin fjallaði um hæfileika kvenna og að þær gætu jafnvel skarað fram úr karlmönnum. Þar var orðið hjólhestur notað í fyrsta sinn. Fyrstu reiðhjólin sem vitað er að hafi verið flutt til Íslands sáust í Reykjavík árið 1890“. „Reiðhjól voru fyrst í fárra eigu og þóttu nýstárleg mitt í hestaumferðinni.“
- Details
- Vefstjóri
Nýuppgerð kaffistofa klúbbsins var formlega vígð og setustofan sett í hátíðabúning til að fagna sólstöðum og aðventu 4 des 2014. Geir Harðar fangaði stemninguna þessa notalegu kvöldstund í þessum myndum. Í boði var eðal-kaffi Arnalds, vöfflur, heimabakað frá Hrönn, piparkökur, jólaglögg og fleira góðgæti.
- Details
- Grétar William Guðbergsson
Sumarleyfisferð Hjólaræktar Útivistar 2013 var farin um Vestfirði sunnanverða 4. – 9. júlí 2013. Hópurinn kom á eigin bílum í Stykkishólm, þar sem ferjan var tekin yfir Breiðafjörð. Reyndar voru nokkur þegar komin vestur á firði og ætluðu að hitta hópinn á Brjánslæk. Við vorum komin tímanlega til að ná ferjunni sem fór frá landi um hálf fjögur. Auk þess þurftum við að finna einhvern til að taka trússkerruna í bátinn, þar sem trússarinn bjó á Patreksfirði og það tókst fljótlega.
- Details
- Ómar Smári Kristinsson
Hörmungatúrismi er útbreiddari en margur kynni að halda. Fjöldi fólks fær mikið út úr því að skoða gamla pyntingaklefa, vígvelli og staði sem hafa orðið illa úti í allskyns hamförum. Íslendingar kynntust þessu eftir Suðurlandsskjálftann árið 2000 og eitthvað var um að fólk gerði sér ferð í draugahverfin nýju eftir efnahagshrun. Það sem fyrst og fremst verður illa úti á Íslandi er jafnframt það sem flestir kjósa að skoða, þ.e. náttúra landsins. Sá fjöldi fólks sem skoðar Kárahnjúka í dag er margfaldur á við fjöldann sem þangað fór áður en staðnum var rústað. Framkvæmdin var að sjálfsögðu mikil kynning og nýjir vegir gerðu svæðið aðgengilegt almenningi en hörmungatúrismi er það engu að síður.
- Details
- Filippía Þ. Guðbrandsdóttir
Sameiginleg saga mín og reiðhjólsins er ekki ýkja löng. Ég er nýlega skriðin í sextugt og er stolt af því. Fyrsti hjólatúrinn var á reiðhjóli bróður míns þegar ég var 7 ára. Ég stalst til þess og það var í fyrsta og jafnframt síðasta sinn, því á alltof stóru DBS strákahjóli var ég tilneydd að hjóla “undir slá”. Hver veit nú hvað það er í dag .. !
- Details
- Páll Guðjónsson
Íslenski fjallahjólaklúbburinn (ÍFHK) var stofnaður í þjóðgarðinum í Skaftafelli 5. júlí 1989 og hefur því starfað í aldarfjórðung á þessu ári. Stofnendur og félagsmenn ÍFHK voru um margt frumkvöðlar í ferðamennsku á reiðhjólum við íslenskar aðstæður. Fjallahjólin voru ný á þessum tíma og auðvelduðu bæði ferðir um fjöll og firnindi en líka ferðir í borgum því á þessum tíma voru flágar sjaldséðir á gangstéttum. Það var því kannski eðlilegt að kenna hinn nýstofnaða klúbb við það farartæki enda varð fjallahjólið fljótlega allsráðandi á markaðinum hérlendis. Af og til hefur komið til tals að breyta nafninu en ávallt verið ákveðið að halda í þetta gamalgróna og þekkta nafn. Sögu klúbbsins má lesa á vef klúbbsins og raunar líka sögu hjólreiða á Íslandi frá upphafi.
- Details
- Hrönn Harðardóttir
Kíktu með í ferð með okkur
Ég ætlaði varla að þora að mæta í mína fyrstu þriðjudagskvöldferð. Ég hélt að allir í Fjallahjólaklúbbnum hlytu að vera í þrusuformi, á eðalhjólum og spandexklæddir frá toppi til táar. Verandi miðaldra, gigtveik, allt of þung kona, á ódýru byggingavöruverslunarhjóli hafði ég áhyggjur af því að ég ætti ekkert erindi í þennan félagsskap. Ég byrjaði að hjóla af því ég var ekki göngufær lengur sökum ofþyngdar. Framundan var utanlandsferð með gönguklúbbnum mínum og ég var ekki í neinu formi til að taka þátt. Ég setti mér það markmið um vorið að koma mér í betra form með því að synda daglega og hjóla til vinnu svo ég þyrfti ekki að hanga ein á barnum á meðan göngufélagar mínir spændu sprækir upp um fjöll og firnindi. Þetta heppnaðist ljómandi vel, ég var allt önnur manneskja um haustið og plumaði mig vel í gönguferðinni, svo ég ákvað að taka dæmið lengra og hjóla um veturinn og komast í enn betra form. Ég rakst á Fjallahjólaklúbbinn á netinu og heillaðist af starfseminni, sérstaklega því að allt starf er þar unnið í sjálfboðavinnu.
Fleiri greinar...
- Velo-City ráðstefnan 2013
- Bláalónsþrautin 2013
- Hlutdeild hjólreiða
- Haustlitaferð 2013 - myndir
- Enn eru ónýttir möguleikar í ferðaþjónustunni
- Svipmyndir úr þriðjudagskvöldferðunum 2013
- Landmannalaugar - Hella - svipmyndir
- Hjólaþjónusta um allt land á nýju korti
- Kerlingarfjöll - Setur - svipmyndir
- Snæfellsnes norðanvert - svipmyndir
Kveðskapur
Hér er safn af kveðskap um hjólið sem hefur birst í fréttabréfum klúbbsins í gegnum tíðina.