Landssamtök hjólreiðamanna hafa ítrekað lagt til að farartækin fái að heita sínum réttu nöfnum í skilgreiningum laganna og að ákvæði um notkun reiðhjóla eigi jafnframt við um þessi tilteknu tæki. Það er rökrétt og gerir mönnum kleift að styðjast við þessa eina skilgreininu á reiðhjólum í öðrum lögum og reglum. Eins og staðan er núna er ekki visst að ákvæði þeirra eigi við um reiðhjól samkvæmt málvenju eða samkvæmt skilgreiningu í umferðarlögum. Núna er t.d. verið að endurskoða ákvæði reglugerðar um gerð og búnað reiðhjóla. Hvaða reiðhjól er átt við þar?
Fyrir neðan er reynt að þýða stofnanamálið yfir á mannamál og skýringamyndir eru hér efst. Ekki veit ég hver rökin eru fyrir þessu orðalagi því allan rökstuðning skortir.
Farartæki / lýsing í lögum | Max hraði | Má nota akbraut | Má nota gangstétt / -stíga | Lagalegt heiti | Almennt kallað |
Venjulegt reiðhjól | ∞ | Já | Já | Reiðhjól | Reiðhjól |
Reiðhjól með hjálparmótor | ∞ | Já | Já | Reiðhjól | Rafmagnshjól / Pedalec |
Vélknúið hlaupahjól | 25 | Bannað | Já | Reiðhjól | Vélknúið hlaupahjól |
Tvíhjóla ökutæki á einum öxli | 25 | Bannað | Já | Reiðhjól | Segway |
Hjólastóll max 15 km á klst. | 25 | Bannað | Já | Reiðhjól | Rafmagnshjólastóll / Rafskutla |
Létt bifhjól í flokki I | 25 | Já | Já | Létt bifhjól í flokki I | (Rafmagns-) Vespa |
Létt bifhjól í flokki II | 45 | Já | Nei | Létt bifhjól í flokki II | Skellinaðra / vespa |
Bifhjól | ∞ | Já | Nei | Bifhjól | Mótorhjól |
Hvaða farartæki er þetta?
-Páll Guðjónsson og ÁD
Hjólhesturinn 1. tbl. 24. árg. mars 2015