Gangið í klúbbinn
Almennt félagsgjald er aðeins 3500 kr. sem er oftast fljótt að spara sig upp þegar nýttir eru þeir veglegu afslættir, sem flestar betri verslanir með hjól, útivistarvörur og fleira veita félagsmönnum okkar.
Einnig er hægt er að skrá alla fjölskylduna fyrir 4750 kr. og þá geta allir fengið skírteini, látið nöfn og kennitölur fylgja.
Ef þú ert undir 18 ára aldri þá bjóðum við upp á sérstakt barna og unglingagjald 2500 kr en þá þurfum við að fá bæði nafn og kennitölu viðkomandi og nafn og kennitölu forráðamanns. Þetta er vegna reglna í bönkum um að ekki megi stíla reikninga á fólk sem ekki er fjárráða.
Sendið tölvupóst á
Félagsgjaldið er fljótlegast að leggja inn á debetreikning klúbbsins 515-26-600691, kennitala klúbbsins er 600691-1399 og passið að nafn og kennitala greiðanda komi fram.
Þegar greiðslan er komin í gegn sendum við svo skírteinið um hæl og fréttabréfið okkar þegar það kemur út. Einnig bætum við ykkur á póstlistann okkar.