- Details
- Árni Davíðsson
Velo-city ráðstefnurnar eru haldnar af Hjólreiðasamtökum Evrópu, ECF, sem Landssamtök hjólreiðamanna eru aðili að. Þetta eru stærstu hjólaráðstefnur sem haldnar eru í heiminum árlega til skiptis í Evrópu eða í annarri heimsálfu. Þegar hún er utan Evrópu er hún kölluð Velo-city global. Þær borgir sem vilja standa framarlega í hjólreiðum og vera hip og kúl keppast um að fá ráðstefnuna til sín.
- Details
- Geir Harðarson
Forsagan
Frá því ég keypti CUBE-Fákinn vorið 2012 hefur fólk verið að hvetja mig til að mæta í Bláalónsþrautina. Sumir ætluðust jafnvel til að ég mætti tveimur mánuðum eftir að ég fékk hjólið. Ég var efinst þá en svo viðbeinsbrotnaði ég þannig að ekki þurfti að pæla mikið í því.
Ferðirnar með Fjallahjólaklúbbnum frá Reykjavík að Úlfljótsvatni hafa verið einstaklega góður undirbúningur fyrir Bláalóns keppnina þar sem maður verður að passa að sprengja sig ekki. Það var því ekki spurning um að mæta í keppnina 2013.
- Details
- Árni Davíðsson
Hjólreiðar hafa aukist mikið undanfarin ár eins og menn hafa orðið varir við en mikilvægt er að upplýsingar séu til um breytingar á vali fólks á ferðamátum og að hægt sé að bera saman upplýsingar milli tímabila. Ýmiskonar gögnum hefur verið safnað um ferðamáta fólks svo sem skoðanakannanir, ferðavenjukannanir og talningar. Allar þessar upplýsingar staðfesta breytingar á ferðavenjum á höfuðborgarsvæðinu þó þær séu gerðar með ýmsum hætti og gefi mismunandi upplýsingar. Það sem gefur besta mynd af aukningu hjólreiða eru skoðanakannanir sem Reykjavíkurborg hefur látið gera í um 10 ár í okt. - des. Hér eru niðurstöður úr þeim teknar saman.
- Details
- Sesselja Traustadóttir
Nú er hafin frí dreifing á kortinu „Cycling Iceland 2013 with route map of public transport around Iceland“. Á kortinu eru nánast allar upplýsingar um reiðhjólatengda þjónustu. Viðar á Húsavík og Þorsteinn á Króknum; þeir og urmull annarra landsmanna reyndust liðtækir í hjólaviðgerðum þegar farið var að rýna í hjólakjörin allt í kringum landið.
- Details
- Brellurnar
Brellurnar er hópur kvenna sem flestar búa á Patreksfirði. Nafnið, sem rímar við gellurnar, er vísun í fjallið fyrir ofan þorpið Patreksfjörð. Brellurnar skipa Björg Sæmundsdóttir, Elín Krístín Einarsdóttir, Halldóra Birna Jónsdóttir, María Ragnarsdóttir, Salóme Þorbjörg Guðmundsdóttir og Sædís Eiríksdóttir.
Þær hjóluðu 640 km. Vestfjarðahringinn sumarið 2011 til styrktar Fríðu Eyrúnu Sæmundsdóttur. Aldur Brellnanna er frá 25 – 46 ára eins og er og vonandi bætast fleiri í hópinn smátt og smátt.
- Details
- Páll Guðjónsson
Michael Tran var með erindi í klúbbhúsi ÍFHK í vetur og fékk þar smá aðstoð við að móta frásögn sína og framsetningu af hjólaferð yfir Alpana. Nánar má fræðast um þetta á facebook síðu sem tilenkuð er verkefninu og fyrir neðan er nánari lýsing og tengill á bókina sjálfa á rafrænu formi.
- Details
- Páll Guðjónsson
Hjólað til framtíðar var yfirskrift þriðju ráðstefnunnar um málefni hjólandi vegfarenda á síðustu tveim árum. Áherslan var á það sem efst ber á baugi í heimi hjólavísindanna og reynslu þeirra sem hafa eflt hjólreiðar í sínu nærumhverfi.
Tækifæri í hjólaferðamennsku á Ísland, hét málþing haldið var í febrúar 2012. Það var liður í verkefninu Hjólaleiðir á Íslandi og fjallaði um tækifærin sem fólgin eru í hjólaferðamennsku á Íslandi, hver staðan er og hvað við þurfum að gera til að geta nýtt þessi tækifæri.
- Details
- Árni Davíðsson
LHM hefur frá stofnun unnið mikið starf til eflingar hjólreiða ásamt öðrum hjólreiðafélögum. Við viljum gjarnan fá áhugasama einstaklinga og félög til liðs við okkur til að efla hjólreiðar á Íslandi.
Félög og einstaklingar geta sótt um aðild að samtökunum með því að senda bréf á póstfang samtakanna eða með tölvupósti á
Einstaklingar geta einnig fylla út umsóknarform frá vef LHM. Nánari upplýsingar eru á vef samtakanna www.LHM.is: Aðild að LHM.
- Details
- Sesselja Traustadóttir
Rannsókn og kvenna hjólahvatning í Reykjavík; Fröken Reykjavík hjólar
Samgönguhjólreiðar nefnist fyrirlestur sem fluttur verður á nokkrum völdum kvennavinnustöðum borgarinnar og einnig verður á dagskrá nokkurra valinna leik- og grunnskóla borgarinnar í vor ástandsskoðun reiðhjóla með Dr. Bæk og leiðsögn í hjólfærni á götum úti.
- Details
- Sesselja Traustadóttir
Í slopp með rannsóknarspjald, skrúfjárn í annarri og pumpuna í hinni, hefur Dr. Bæk birst meðal Íslendinga frá því á vordögum 2008. Hugmyndin var fengin að láni frá vinum vorum Bretum og Doktorinn fæddist á Umhverfisráðstefnu sem haldin var í Perlunni á Degi Umhverfisins þá um vorið.
- Details
- Sesselja Traustadóttir
Það voru stoltir starfsmenn og nemendur Fossvogsskóla sem komu á sviðið í Iðnó á Hjólum til framtíðar 2012 og tóku á móti viðurkenningu úr hendi Borgarstjóra; Hjólaskálin 2012 fyrir afburða eflingu hjólreiða í daglegu lífi og starfi skólans.
Fossvogsskóli býr að langri hefð fyrir öflugri hjólamenningu. Það hafa skipst á skin og skúrir í gegnum árin og þrátt fyrir erfiða hjólatengda atburði, hefur aldrei verið fallið frá því að nemendur séu ævinlega velkomnir á hjóli í skólann. Í mörg ár hefur viðmið skólans verið að nemendur í 1. bekk, séu hvattir til að koma á hjóli í skólann fyrsta vorið sitt í skólanum.
Fleiri greinar...
Kveðskapur
Hér er safn af kveðskap um hjólið sem hefur birst í fréttabréfum klúbbsins í gegnum tíðina.