- Details
- Páll Guðjónsson
Það var mikið að gera hjá okkar fólki á sýningunni Vistvænn lífsstíll og margt góðra gesta eins og sjá má.
- Details
Hjólafærni – hvað er nú það?
Hjólafærni er skilgreind sem hugmyndafræði, þjálfun og umferðarfræðsla fyrir alla sem stýra reiðhjólum, allt frá 7 ára aldri og uppúr.
Við miðum við þrjú þrep í Hjólafærni:
1. Að læra að stjórna hjólinu.
2. Eldri en 9 ára geta nýtt sér markvissa kennslu á hjól og umferðina..
3. Frá 15 ára aldri: að hjóla af öryggi við flestar aðstæður sem umferðin býður upp á.
- Details
- Páll Guðjónsson
Það er margt að gerast 24. til 26 apríl. Í viðbót við viðgerðarnámskeið fimmtudagskvöld og fleira verða reiðhjól sýnileg á tvem viðburðum um næstu helgi:
- Details
- Sesselja Traustadóttir
Í apríl verða 3 opin námskeið í viðgerðum á reiðhjólum (meðlimir í Fjallahjólaklúbbnum hafa forgang). Námskeiðin eru haldin fimmtudagana 10., 17. og 24. apríl í félagsaðstöðu klúbbsins að Brekkustíg 2.
- Details
- Sesselja Traustadóttir
Ferðanefnd ÍFHK er búin að móta dagskrá fyrir ferðir sumarsins. Þar er bæði gamalt og nýtt efni í boði og ferðir við allra hæfi.
- Details
Árið 2007 var gott og skemmtilegt á margan hátt. Klúbburinn tók m.a. í notkun nýja og glæsilega heimasíðu fjallahjolaklubburinn.is. Á síðunni gefst virkum félögum kostur á að skrá sig sem penna og vil ég hvetja sem flesta til þess. Heimasíðan er einnig kjörin til þess að deila ferðasögum og myndum.
- Details
- Sesselja Traustadóttir
Stefnum að öflugri samgönguhjólreiðum:
Viltu vera með í að móta Hjólafærni?
Sannanlega má segja að með komu John Franklin hafi ákveðin straumhvörf mótast í hugum þeirra íslensku hjólreiðamanna sem á hann hlýddu. Hugmyndir hans hljóma svo eðlilega fyrir umferðina og það er ekki hægt annað en hrífast með því sem Bretarnir hafa tileinkað sér.
Verkefnastjórn hefur orðið til innan raða ÍFHK og LHM, skipuð Sesselju Traustadóttur, Morten Lange og Páli Guðjónssyni. Þessi stjórn hefur sett sér það markmið að afla fjár til þess að byggja ofan á þá þekkingu sem John Franklin miðlaði til okkar.
- Details
- Páll Guðjónsson
Nýlega skoðuðum við hvað starfsfólki sem kýs að hjóla til eða í vinnu er boðið annarsvegar hjá Reykjavíkurborg og hinsvegar VGK-Hönnun.
Samgöngustyrkur til starfsmanna VGK-Hönnunar í Reykjavík:
VGK-Hönnun greiðir strætókort fyrir þá starfsmenn sem að jafnaði nota strætó í ferðir til/frá vinnu.
VGK-Hönnun greiðir andvirði strætókorts til þeirra starfsmanna sem að jafnaði ganga/hjóla til vinnu eða koma með öðrum í bíl.
Til að auðvelda starfsmönnum að nýta sér vistvæna ferðamáta til/frá vinnu verða merktir fyrirtækisbílar til staðar fyrir vinnutengdar ferðir starfsmanna.
Ef starfsmenn sem nýta sér vistvænan ferðamáta þurfa óvænt að ferðast í einkaerindum á vinnutíma, t.d. vegna veikinda barna, mun VGK-Hönnun endurgreiða viðkomandi leigubílakostnað.
Þessi samningur er alveg til fyrirmyndar og væri gott að fá ábendingar um fleiri sambærilega frá ykkur. Samningur Reykjavíkurborgar er flókinn og sýnist okkur hann vera íþyngjandi og fráhrindandi nema fólki sem er tilbúið að skuldbinda sig til að hjóla í heilt ár allan ársins hring og þarf ekkert að fara á "jakkafatafundi" enda t.d. afsala þeir sér greiðslur vegna leigubílanotkunar. 5. gr. er t.d. svona: "Ef aðstæður breytast getur sviðsstjóri eða forstöðumaður sagt upp hjólreiðasamningi með eins mánaðar uppsagnarfresti." Ekki að sjá að starfsmaður geti sagt samningnum upp sjálfur. Þetta er góð viðleitni en þarf að útfæra betur.
Lesa má Samgöngustefnu VGK-Hönnunar hér en þar sem við fundum ekki samning Reykjavíkurborgar á vef þeirra er hann hér fyrir neðan.
Uppfært: Eftir sameiningu er VGK-Hönnun orðin Mannvit og en samgöngustefnan sú saman hér
Fleiri greinar...
Síða 55 af 63