- Details
- Páll Guðjónsson
Nú liggur fyrir Alþingi fumvarp um að banna eigi umferð hjólafólks á forgangsakreinum eins og þessari á myndinni ásamt sektum við broti þar á.
Landsamtök hjólreiðamanna, sem ÍFHK er aðili að, sendi inn umsögn vegna frumvarpsins og leggur til að hjólafólki verði veittur forgangur í umferðinni með þessum forgangsakreinum og bent á hættur þess að vera með bílaumferð beggja vegna við sig á annarri akreininni. Sem fylgiskjal var send umfjöllun John Franklin um þversagnir í öryggismálum hjólafólks þar sem meðal annars er fjallað um forgangsakreinar. Það verður forvitnilegt að fylgjast með hvernig þessi ríkisstjórn bregst við, hvort hún vill stuðla að bættri aðstöðu til hjólreiða á Íslandi eða fæla fólk frá hjólreiðum með þessu banni.
- Details
- Landssamtök hjólreiðamanna
Að þessu sinni hafa Landssamtök hjólreiðamanna fengið tvo fyrirlesara til landsins.
Annars vegar er það John Franklin, sem er sérfræðingur í umferðaröryggi hjólreiðafólks, og hins vegar Juliane Neuß sem er sérfræðingur í hönnun reiðhjóla. Fyrirlestur hennar mun fjalla um vistfræði hjólreiða og hvernig koma má í veg fyrir t.d. hné- og bakverki vegna hjólreiða.
Takið frá næstkomandi þriðjudagskvöld, fimmtudagskvöld sem og föstudag.
Á laugardeginum verður svo mikið um að vera, þar á meðal er hin árvissa ,,Hjólalest" sem og Tjarnarspretturinn
Nánari upplýsingar er að finna á vef Landssamtaka hjólreiðamanna hér
Hjólakveðja
Stjórnin
Landssamtök hjólreiðamanna
http://hjol.org
- Details
- Páll Guðjónsson
Velkomin á nýjan vef ÍFHK. Íslenski fjallahjólaklúbburinn opnaði fyrst heimasíðu fyrir 10 árum og þótti mörgum tími til kominn að hressa aðeins upp á hana. Við viljum þó ekki kasta út öllu gamla efninu enda ótrúlega mikið af góðum greinum og ferðasögum þar á meðal sem er tímalaust efni og alltaf jafn skemmtilegt og fróðlegt. Fyrst um sinn er því fléttað saman nýju og eldra efni en vefurinn verður þróaður betur í vetur.
Það er margt nýtt sem þetta vefumsjónarkerfi býður upp á svo sem að menn gerist pennar og setji inn efni milliliðalaust eða eftir yfirferð ritstjóra. Einnig söfnum við saman á einn stað úrdráttum úr bloggi nokkurra bloggara sem fjalla oft um hjólreiðar og umferðarmál. Sendið okkur endilega ábendingar um fleiri blogg og vefi sem vert er að bæta við, ef síðan er með RSS þá má birta úrdrættina beint hér á vefnum undir Umræðunni en annars bara í tenglasafninu.
Það sést alltaf hvað er næst á dagskránni hér efst og því auðvelt að sjá nýja atburði sem stundum er skotið inn með stuttum fyrirvara og eru ekki í prentaðri dagskrá. Við getum nú líka auðveldlega gert skoðanakannanir.
- Details
- Bjarni Helgason
Föstudagskvöld 24. águst verður farið hjólandi (eða akandi með hjólið) til Þingvalla og tjaldað nærri þjónustumiðstöðinni þar sem Helgi og Sigga fararstjórar munu sjá um “tjaldvöku” í fellihýsi fram eftir kvöldi.
- Details
- Fjölnir Björgvinsson
Helgina 29. júní -1. júlí stendur ÍFHK fyrir hjólaferð í kringum Skorradalsvatn. (ATH. Undirstrikaðar Breytingar frá fyrri auglýsingum) Umsjón: Fjölnir. S:840 3299.
Lagt verður af stað kl 10:00 laugardagsmorguninn 30. júní, frá bænum Fitjum sem er innst í Skorradal. Þetta er létt ferð þar sem leiðin er ekki nema 43km og farangurinn aðeins hlífðarföt og nesti. Fáar brekkur eru á leiðinni því hún liggur jú við vatnið. Hægt verður að gista báðar næturnar að Fitjum í tjöldum eða í svefnpokaplássi. Ég mæli með tjaldsvæðinu en ef illa viðrar er lítið mál að komast í húsaskjól. Við fáum grillaðstöðu og hægt verður að koma með grillkjöt til að grilla eftir hjóltúrinn. Verðinu á gistingu og aðstöðu er mjög stillt í hóf, en það kemur betur í ljós þegar næst að áætla fjölda ferðafélaga. Áætlað er að fara í sund seinnipart laugardags eftir hjóltúrinn í Hreppslaug (eða á Varmalandi) en þar eru mjög "kósí" sveitasundlaugar.
- Details
- Páll Guðjónsson
Næstkomandi fimmtudagskvöld verður haldið námskeið í undirbúningi ferðalaga á reiðhjóli. Verður það haldið í klúbbhúsinu að Brekkustíg 2, kl. 20:00. Námskeiðið er tilvalið fyrir alla þá sem hafa hug á að fara stuttar sem langar ferðir á reiðhjóli á komandi sumri.
- Details
- Magnús Bergsson
Létt ferð fyrir flesta sem stundað hafa einhverjar hjólreiðar. Þetta verður ógleymanleg helgarferð sem enginn má missa af. Á laugardagsmorgni mæta allir á kjörstað og kjósa þann flokk sem lofað hefur að bæta aðstöðu hjólreiðafólks. Síðan mætum við á bílastæðið við Árbæjarsafn kl. 13:00 og hjólum sem leið liggur til Nesjavalla. Þar verður grillað. Fólk getur einnig sleppt allri matseld og keypt pastarétt að hætti Nesbúðarbónda. Að vanda verður farið í heita pottinn og tekist á um landsmálinn. Síðan mun verða fylgst með Evróvision og kosningavöku fram á nótt. Á sunnudeginum verður hjólað til baka. Trússbíll verður með í för en þó er mælt með því að fólk noti hér tækifærið til að prófa ferðabúnað sinn.
Svefnpokapláss er á kr 2.600 á mann, með morgunverði (venjulega kr. 3.400). Ef þið viljið uppábúið, þá kostar eins manns með sameiginlegu baði kr 5.500. Með baði kostar herbergið uppábúið kr 8.000. Tveggja manna uppábúið herbergi með sameiginlegu baði kostar kr 7.000 og með baði kr 9.500. Morgunverður innifalinn. Pastarétturinn kostar kr 1000 á mann, en auk þess er auðvitað hægt að fá aðra og meiri rétti. Fólk er hvatt til að panta gistinguna sem fyrst hjá Guðmundi í Nesbúð 482-3415.
Til að auðvelda allt skipulag þá er fólk hvatt til að senda Magnúsi Bergssyni tölvupóst á
Magnús Bergs 8/5/2007
- Details
- Sólver H. Sólversson
Fleiri greinar...
Síða 57 af 63