- Details
- Páll Guðjónsson
Það var ekið frá Reykjavík föstudagskvöldið 19. júní frá klúbbhúsinu að Brekkustíg 2 kl 18:00 og Árbæjarsafni kl 19:00. að Fitjum í Skorradal og gist. Á laugardeginum var hjólaður hringurinn í kringum vatnið, farið í sund í Hreppslaug og grillað og leikið um kvöldið. Aftur gist að Fitjum og ekið til baka til Reykjavíkur á sunnudeginum.
Skoðið gallerí með myndum Magnúsar Bergssonar úr ferðinni hér.
- Details
- Páll Guðjónsson
Myndir Magnúsar Bergs úr hinni árlegu ferð klúbbsins á Nesjavelli eru loksins komnar á netið. Þetta er fyrsta ferð sumarsins og er oft fyrsta hjólaferðalag þeirra sem taka þátt, því hún hentar sérstaklega vel nýliðum jafnt sem lengra komnum. Frábært tækifæri til að stíga skrefið í góðum hópi og öðlast reynslu í að ferðast á hjóli og læra um leið af öðrum.
- Details
- Páll Guðjónsson
Eftir gott starf í allt sumar var lokaferð þriðjudagskvöldferðanna stutt. GÁP bauð okkur í glæsilega grillveislu. Búðin var opin og ýmis góð tilboð í boði
þetta kvöld. Þriðjudagsbikarinn var afhentur; í ár var það Hrönn sem hlaut
bikarinn sem Alhliða flutningaþjónustan gaf. Smellið á myndina til að að skoða myndir frá þessu skemmtilega kvöldi.
- Details
- Páll Guðjónsson
- Details
- Páll Guðjónsson
- Details
- Garðar Erlingsson
Í þriðjudagsferðinni 11/8/2009 var farið kl 19 frá Fjölskyldu
og húsdýragarðinum eins og venjulega í sumar. Stefnan er tekin á Gróttu sem er
náttúrulega alveg himneskt svæði, sérstaklega í góðu veðri eins og
útlit var fyrir þetta kvöld. Að þessu sinni var brugðið útaf vananum og
er ætlunin að skella sér í smá sjósund í leiðinni.
- Details
- Axel Jóhannsson
Hjólakeppni í Noregi? Ert þú búin að skrá þig? Hlynur líka, Kjarri,
Steini, Gísli og Emil frá Arctic trucks? Ætlar þú ekki að skrá þig? Jú,
auðvitað er ég með. Hvenær er þetta? Í ágúst, já, flott! Hvað er þetta
langt? 100 km. Ertu eitthvað verri? Ég hef aldrei hjólað lengra en 20
km í beit og var alveg að...
- Details
- Hrönn Harðardóttir
Það var fríður og föngulegur hópur hjólreiðafólks sem lagði af stað frá Fjölskyldu- og Húsdýragarðinum um kl. 19, þriðjudaginn 4 ágúst. Ekkert okkar vissi hvert förinni var heitið, en við vonuðum að Garðar forystugarpur myndi leiða okkur á vit óvissu og ævintýra. Veðurspáin var rigning, nema hvað og mátti sjá suma svartsýna stoppa hér og þar og klæða sig í regnbuxur. En veðurguðirnir voru með okkur, það ýrði úr loftinu, rétt mátulega mikið til að gróðurinn ilmaði einstaklega vel.
- Details
- Gerti van Hal
Það var árið 1997. Eftir svakalegar gönguferðir um afskektustu svæði skosku hálandanna og finnska Lapplands vildi ég komast að því hvort hjólreiðaferðir væru líka eitthvað fyrir mig. Á ferðaskrifstofu fyrir ævintýraferðir komst ég yfir amatörískan hjólreiðabækling frá Íslandi. Þar las ég um ferðir um hin ósnortnu víðerni hálendisins. Ævintýri! Ótruflaður í vikulöngu ferðalagi í gegnum hrikalegt og einmanalegt landslag, þetta var áfangastaðurinn minn.
- Details
- Ben Searle
Árið 1933 fór Horace Edward Stafford Dall fyrstur allra yfir auðnir Sprengisands á farartæki með hjólum. Farartækið var Raleigh þriggja gíra reiðhjól með lokaðri keðjuhlíf. Það var mánuði seinna sem fyrst var farið yfir sprengisand á mótordrifnu farartæki. Ben Searle segir söguna.
- Details
Er þversögn í því að öryggi hjólreiðamanns sé best borgið á götunni? Hvað með gangstéttina? Þar er enginn á bíl – verða þá nokkur slys þar? Hvenær stuðar bíll hjól? Hvenær stýrir ökumaður ökutæki sínu á hjólreiðamann á reiðhjóli? Algengustu tilvikin eru þar sem hjól þvera veginn. Enginn fyrirvari – jafnvel skert útsýni. Búmm!
Eigum við þá að leggja hjólunum í geymsluna, skutla börnunum í skólann og skjótast á bílnum í sjoppuna en hjóla svo á góðviðrisdögum í Nauthólsvíkina og njóta þess að anda þá að okkur fersku lofti á ferð um borgina? Af hverju ekki að læra rétta staðsetningu reiðhjólsins á götunni og gera hjólið að samgöngutæki númer eitt á heimilinu?
- Details
- Páll Guðjónsson
Íslenski fjallahjólaklúbburinn (ÍFHK) var stofnaður í þjóðgarðinum í Skaftafelli
5. júlí 1989 og er því orðinn 20 ára. Það hefur margt breyst frá upphafsárum klúbbsins, t.d. öll tækni og þekking tengd reiðhjólunum og jákvæð viðhorf til þeirra sem hjóla. Hvað varðar náttúruna þá hefur mikið breyst á stórum svæðum, vegna virkjana m.a. Ekki eru allir heldur á því að auðveldara aðgengi að hálendinu sé til bóta. Í tilefni dagsins eru hér nokkrar myndir af þeim félögum Magnúsi Bergssyni og Gísla Haraldssyni í ferðinni sem gat af sér klúbbinn okkar.
- Details
- Árni Davíðsson
Í haust voru málaðir svo kallaðir hjólavísar á nokkrar götur í Reykjavík. Það var á Suðurgötu sunnan Hringbrautar og Einarsnes í póstnúmeri 107 og Langholtsveg og Laugarásveg í póstnúmeri 104.
Hvað eru hjólavísar?
Á ensku heita hjólavísar »Bike-and-chevron«. Þeir hafa verið notaðir víða um heim. T.d. í San Francisco og fleiri borgum í BNA, París í Frakklandi, Brisbane í Ástralíu, Zürich í Sviss og Buenos Aires í Argentínu. Hjólavísar eiga að gefa bæði hjólreiðamönnum og ökumönnum skýr skilaboð um að hjólreiðamenn eigi þarna rétt og það beri að taka tillit til þeirra.
- Details
- Páll Guðjónsson
Þessi mynd sýnir hvar faðir reiðir dóttir sína milli staða í Amsterdam og ekki annað að sjá en vel fari á með þeim. Þetta er ólöglegt á Íslandi. Líklega var lagt bann við þessu af einhverjum sem töldu þetta hættulegt háttarlag en hvað höfðu þeir fyrir sér? Nú eru fleiri bönn við heilbrigðum hjólreiðum í farvatninu en jafnframt er unnið að endurskoðun laganna í heild sinni.
- Details
- Páll Guðjónsson
Megnið af gatnakerfinu hentar afar vel hjólreiðafólki og gatan er
öruggasti og greiðfærasti staðurinn. 30 kílómetra hverfin eru þar
líklega fremst í flokki. Flestar tengibrautir henta líka og þar sem eru
tvær samhliða akreinar er lítið mál fyrir bíla að taka framúr. Ef gatan
er með þrengingum þannig að ekki er hægt að fara með öruggum hætti fram
úr hjólreiðamanni á hjólreiðamaðurinn ekki að leyfa framúrakstur heldur
á hann að taka alla akreinina. Eins þarf hann að vera í öruggri
fjarlægð frá kyrrstæðum bifreiðum svo hann verði ekki fyrir hurð sem
opnast óvænt. Þar sem hjólavísar hafa verið settir á Suðurgötu,
Einarsnes, Langholtsveg og Laugarásveg eru þeir staðsettir eftir þessum
reglum og marka öruggustu leiðina fyrir hjólreiðafólk ásamt því að
minna bílstjóra á að þeir deili götunum með annars konar en jafn
réttháum ökutækjum.
- Details
- Hildur Eiríksdóttir
ÍFHK skipulagði ferð frá Kaupmannahöfn til Berlínar sumarið 2008. Þessi
leið var merkt árið 2000 þegar þessar borgir voru menningarborgir
Evrópu. Skipuleggjendur voru Sesselja Traustadóttir og Kjartan Guðnason
og voru þau einnig fararstjórar í ferðinni. Þegar Sesselja
samstarfskona mín talaði um ferðina í vinnunni stóðst ég ekki mátið,
gekk í klúbbinn og skráði mig í ferðina. Ekki var ég alveg viss um að
ég gæti þetta í hópi íslenskra fjallahjólagarpa sem eiga flóknari
hjólaferilskrá en ég. Ég lét mig samt hafa það – ég kæmi þá bara
síðust í næturstað og þættist hafa tafist við að skoða umhverfið á
leiðinni.
- Details
- Margrét Friðriksdóttur
Þessi pistill fjallar um hjólreiðar. Þeir sem eru nú þegar búnir að
átta sig á gagni þessa fararmáta þurfa ekki að lesa lengra. Þið hin sem
rákuð augun í þennan pistil og hafið ekki enn uppgötvað það – lesið
áfram...
Mín hjólasaga nær ekki langt aftur, tja... svona u.þ.b. átta ár aftur í tímann. Hún hófst þegar góður vinur bauð okkur hjónum í hjólatúr ásamt fleirum ... svona helgarferð. Ætlunin var að fara hringinn umhverfis Skorradalsvatn.
- Details
- Bjarney Gunnarsdóttir og Sesselja Traustadóttir
Hjólafærni miðar að því að auka öryggi hjólreiðamanna í umferðinni og
var fyrst kynnt á Íslandi á samgönguviku árið 2007. Í framhaldi af því
hefur hópur áhugamanna um hjólreiðar unnið að því að koma Hjólafærni af
stað á Íslandi, bæði með kynningum og námskeiðum. Hjólafærni er
upprunnin í Bretlandi og hefur notið feikilegra vinsælda þar í landi.
John Franklin hefur verið talsmaður Hjólafærni í Bretlandi og kom til
Íslands til að kynna verkefnið. Hjólafærni er heildstæð stefna í
menntun hjólreiðafólks þar sem hjólað er undir leiðsögn viðurkennds
hjólakennara. Hjólreiðaþjálfunin skiptist í þrjú stig eftir aldri, getu
og reynslu.
- Details
- Bárður Örn Gunnarsson
Reykjavíkurborg og Landsamtök hjólreiðamanna hafa undanfarið verið að
vinna saman að betrumbótum á samgöngukerfi hjólreiðamanna í Reykjavík.
Ferlið hefur gengið misvel en þó hefur náðst betri árangur nú síðustu
misseri en oft áður.
Nýjasta útspilið eru hjólavísar (e.chevrons) sem lagðir hafa verið eftir Einarsnesi í Skerjafirði og eftir Suðurgötu. Skv. bloggi Gísla Marteins eru þessar merkingar fyrst og fremst hugsaðar til að beina hjólandi umferð frá Ægisíðustígnum og upp að háskólanum. Þessi aðferð er víða notuð m.a. í Kanada þar sem ákveðnar götur eru gerðar að hjólavænum götum og reynt að beina sem mestri umferð inn á þær, þannig verða hjólreiðamenn áberandi á þeim götum og minni líkur á slysum af völdum ónærgætinna bílstjóra.
- Details
- Fjölnir Björgvinsson
2008 var sérlega gott ár fyrir Íslenska fjallahjólaklúbbinn sem telur nú metfjölda félaga. Klúbburinn stóð fyrir mjög blómlegu félagslífi; fjölbreyttum ferðum; skemmri og lengri ferðum innanlands og erlendis. Viðburðir í klúbbhúsinu voru líka fjölmargir og fjölbreyttir; myndakvöld, viðgerða-, ferðaundirbúnings-, teininga-, og vetrarbúnaðarnámskeið, konukvöld, kaffihúsakvöld og margt fleira. Hápunktur starfsemi ÍFHK '08 var samt án efa "Stóra Berlínarferðin" en 16 manna hópur hjólaði á 8 dögum frá Kaupmannahöfn til Berlínar og þriggja daga hjólaferðin um bakka Þjórsár.
Fleiri greinar...
- Hjólavísar á götum Reykjavíkur
- Ljóðabókin kærleikskitl ljóð - óbærileg lífshamingja
- Vel heppnuð hjólahátíð
- Breytingatillögur LHM vegna endurskoðunar umferðarlaga.
- Samanburður á reiðhjóli og bifreið sem samgöngutæki
- Þriðjudagsferð Elliðavatnshringur 22. júlí 2008
- Fleiri myndir úr Mosfellsbæjarhringnum
- Um 30 manns fóru Mosfellshringinn í gær.
- Kaupmannahöfn Berlín - Sessý og Kjartan
- Fyrstu myndir úr Berlínarferðinni.
Kveðskapur
Hér er safn af kveðskap um hjólið sem hefur birst í fréttabréfum klúbbsins í gegnum tíðina.