- Details
- Páll Guðjónsson
Fjallahjólaklúbburinn
og Landssamtök hjólreiðamanna hafa beitt sér fyrir því að hjólavísar yrðu málaðir
á nokkrar götur til að auka þægindi og öryggi hjólreiðamanna í umferðinni og nú
eru þeir komnir á Suðurgötu sunnan Hringbrautar og á Einarsnes. Við fögnum þeim ákaflega
og vonum að þeim verði vel tekið.
- Details
- Unnur Sólrún Bragadóttir
Hjólhestur
Á farartækjum ýmis konar ferðumst við öll.
Flugvél nota margir, háloftanna tröll,
bílar eru algengir í óhófi þá nýtum,
allt of lítið göngum ef til framtíðar lítum.
Reiðhjólið er frábært mér finnst það engu líkt.
Fáðu þér í einum grænum endilega slíkt
það brunar með þig áfram á ótrúlegum hraða
orku þína notar og engum veldur skaða.
Þú sem ert að hjóla að þér útilofti andar
útivist og ánægju á snjallan hátt þar blandar.
Ekki ertu að menga svo mikið er víst
á milli staða hljóðlega þú einfaldlega skýst.
Unnur Sólrún Bragadóttir
- Details
- Páll Guðjónsson
Það var mikil hjólahátíð á Samgönguvikunni þann 20. sept. Íslenski fjallahjólaklúbburinn, Landssamtök hjólreiðamanna og fleiri aðstoðuðu við hjólalestir sem löguð af stað víðsvegar um höfuðborgarsvæðið og mættust síðan allar í Nauthólsvík. Þaðan var síðan hjólað í stórri hjólalest að Ráðhúsinu þar sem við tók fjölbreytt dagskrá sem Hjólareiðafélag Reykjavíkur átti stóran þátt í. Á vef þeirra hfr.is má lesa meira um keppnirnar og skoða fjölda mynda frá viðburðunum en hér eru myndir sem Páll Guðjónsson tók við Tjörnina. Á síðustu myndinni er verið að afhenda nýtt stígakort Reykjavíkur sem minnir meðal annars á það mikilvæga atriði að reglulegar hjólreiðar lengja lífið !
- Details
- Páll Guðjónsson
Fyrir neðan eru tillögur og greinargerð sem LHM lagði fram á fundi með nefnd um heildar endurskoðun umferðarlaganna. Fyrsti undirbúningsfundurinn var haldinn um haustið 2007, síðan fóru ýmsar tillögur á milli á póstlista stjórnarinnar og að lokum var fundað um þetta í stjórninni og var samstaða um efnisatriði allra lagabreytingatillagnanna. Páll Guðjónsson skrifaði síðan inngangstextann.
- Details
- Einar Örn Thorlacius
Ég tók bílpróf 17 ára gamall árið 1975. Eftir það snerti ég ekki reiðhjól fyrr en ég keypti mér eitt slíkt árið 1986. Í þessi 11 ár keyrði ég bara og keyrði. Síðan hef ég verið nokkuð duglegur við að hjóla. Í þau 22 ár sem liðin eru síðan ég uppgötvaði hjólið í annað sinn, hef ég ávallt haft bæði bíl og reiðhjól til umráða og hef nokkuð góðan samanburð á þessum gripum sem samgöngutækjum. Ég hef búið í Reykjavíkurborg, í litlu sveitaþorpi úti á landi og ný bý ég á sveitabæ. Reynsla mín er því töluverð!
- Details
- Ferðanefndin
Farinn var hringur um Elliðavatn í þriðjudagskvöldferðinni í gær. Um daginn var veðrið ekki með besta móti, en eins og svo oft áður lygndi með kvöldinu og stytti upp. Við fengum meira að segja kvöldsól. Mikið fuglalíf er á svæðinu og sáum við meðal annars; himbrima og svana parið með ungana sem hefur verið umtalað í fréttum undanfarið. Ungarnir voru reyndar ekki nema 3 en feitir og pattaralegir.
Við vorum góður hópur sem áttum mjög góða stund við Heiðmörkina í gærkvöldi. Stopp var gert á mörgum stöðum til að njóta kyrrðarinnar, svo dagskráin teygðist aðeins. Lauk því ferðinni ekki fyrr en rétt rúmlega 10.
Ferðanefndin.
- Details
- Páll Guðjónsson
- Details
- Fjölnir Björgvinsson
Um 30 manns fóru Mosfellshringinn í gær. Mjög gott veður og kvöldsólin skartaði sínu fegursta. Kollur með ungana sína syntu með ströndinni rétt við stíginn. Nokkrir hestamenn viðruðu fáka sína og golfvellirnir sem við fórum framhjá voru vel nýttir enda veðrið til þess. Sökum veðurblíðu (og minniháttar bilana) dróst ferðin fram eftir kvöldi eða til um 22:30. Nokkrir garpar skáru sig úr hópnum í Mosfellsbæ og héldu áfram inn fyrir Úlfarsfellið og uppá Nesjavallaleið. Við hin fórum sömu leið til baka með fram sjónum.
Fjölnir
- Details
- Páll Guðjónsson
- Details
- Fjölnir Björgvinsson
Fyrstu myndir úr Berlínarferðinni. Við erum í Kansholte á eyjunni Møn. Tveir dagar búnir og gengur allt áfallalaust fyrir sig. Hópurinn er frekar breiður en þéttist við gatnamót og í bæjum. Höfum verið mjög heppin með gistingar og aðstaða okkar til fyrirmyndar. Gistum í Ishøj fyrstu nóttina/næturnar og þaðan eru fyrstu sex myndirnar. Klæðnaðurinn er ekki af því að það sé svo kalt heldur til að skýla okkur fyrir sólinni þar sem nokkur okkar voru byrjuð að sólbrenna þrátt fyrir sólarvörn í talsverðu magni.
Vona að við komumst í svona gott netsamband aftur ti að senda fleiri myndir. Hjólakveðjur úr Danmörku.
Fjölnir Björgvinsson
- Details
- Páll Guðjónsson
Góð tilfinning er titillinn á þessari færslu Dofra Hermannssonar á blogginu. Hann hefur verið duglegur að hjóla eins og lesa má og því bætum við honum á listann okkar yfir bloggsíður þar sem bloggað er um hjólamálefni ásamt öðru sem vert er að fylgjast með.
- Details
- Páll Guðjónsson
Við vorum að setja inn fleiri myndir úr vel heppnaðri ferð klúbbsins á Nesjavelli. Þetta eru myndir sem Magnús Bergsson tók. Það er skemmtilegt að sjá hversu fjölbreyttan búnað fólk er farið að nota. Magnús sjálfur er á "recumbent" hjóli þar sem hann situr í þægilegu sæti bak við vindskel og nýtur þess hve mikið minni vindmótstaða erí svona fararskjóta miðað við venjuleg hjól. Einnig eru nokkrir í ferðinni með svokallaða Bob vagna í eftirdragi. Þeir eru frábær valkostur við bogglabera með töskum að því leitinu til að maður finnur varla fyrir þeim þegar hjólað er. Klúbburinn á einn slíkan sem við leigjum út. Skoðið myndir Magnúsar hér .
- Details
- Morgunblaðið 1. júní 2008
Þetta er yfirskriftin á ýtarlegri umfjöllun í Morgunblaðinu 1. júní 2008. Þar er farið yfir stöðu hjólreiða hér á landi, stígar þræddir um höfuðborgarsvæðið og rýnt fram á veginn. Greinin er eftir Pétur Blöndal og er hin athyglisverðasta lesning fyrir hjólafólk. PG.
- Details
Fyrsta ferðalag klúbbsins í sumar heppnaðist vel. Samkvæmt hefðinni grilluðum við þegar á áfangastað var komið og þeir sem höfðu áhuga gátu svo fylgst með Eurovision um kvöldið í 50" plasmaská. Að sjálfsögðu var einnig slakað á í pottinum. Við hjóluðum svo saman til baka á sunnudeginum þegar allir voru búnir að kýla út kviðinn.
Skoðið myndir úr ferðinni sem Pétur tók
- Details
- Fjölnir Björgvinsson
Það voru um 20 hressir hjólakappar sem tóku saman hjóltúr um Elliðaárdal og Grafarvoginn í gær. Með í för var Ólafur Einarsson fuglafræðingur og sagði hann frá þeim fuglum sem við sáum. Merkilegt hvað augu manns opnast við að hafa fræðimann sér við hlið. Til dæmis á leið sem ég hef hjólað oft undanfarið, benti hann okkur á hrafn sem lá á hreiðri á nokkuð áberandi stað. Ekki grunaði mig að þarna væri hreiður, sérstaklega þar sem ég fer oft þarna um. Við stoppuðum oft til að líta í kringum okkur og spjalla. Frábær hringur. Fjölnir
- Details
- Morgunblaðið 26 maí 2008
Í dag var afar góð úttekt í Morgunblaðinu um hjólreiðastígana sem enn vantar meðfram stóru stofnæðunum, þrátt fyrir það að bæði ríkisvald og sveitarstjórnir hvetji almenning til hjólreiða og almennrar hreifingar. Við látum allan pistilinn fylgja. Páll Guðjónsson
- Details
- Magnús Bergsson
Ekki þarf oft að fara um göngustíga Reykjavikur, eða annarra sveitarfélaga, til að komast að því að þar ríkja fremur tilviljanakenndar umferðarreglur. Erfitt er að framfylgja hefðbundnum umferðarreglum. Þar eru margs konar vegfarendur sem fara um á mjög mismunandi hraða: Hundar, lausir og í bandi, göngufólk, hlauparar, skokkarar, börn, eldri borgarar, fólk með barnavagna, á línuskautum og á reiðhjólum.
- Details
- Eyrún Guðjónsdóttir
Það var í fyrra vor sem hann Fjölnir vinur minn fór að hvetja mig í því að hjóla í vinnuna. Ég hélt hann væri galinn. Jú jú,ég átti fínt ca 10 ára gamalt, ónotað hjól í geymslunni, en að hjóla og það alla leiðina í vinnuna, það var óhugsandi.
- Details
- John Franklin (Páll Guðjónsson þýddi)
Nýjasta útgáfa af þessu kennsluefni er að finna á vefnum hjólreiðar.is ásamt miklu af gagnlegu efni fyrir þá sem eru að tileinka sér reiðhjólið sem samgöngutæki: http://hjolreidar.is/samgonguhjolreidar-greinar/samgognuhjolreidar
Samgönguhjólreiðar – kynning John Franklin
Ráðhús Reykjavíkur. 22. september 2007
Inngangur
Tilgangur þessarar kynningar er að gefa gagnlegar ráðleggingar um hvernig best sé að nota reiðhjól sem samgöngutæki (e: vehicular cycling).
- Details
- Páll Guðjónsson
Ath. Þessi samantekt á kröfum og stefnumálum Landssamtaka hjólreiðamanna var uppfærð og útvíkkuð á Ársþingi LHM í febrúar 2010. Lesið stefnumálin hér .
Þann 17. janúar 2008 stóðu Íslenski fjallahjólaklúbburinn og Landssamtök hjólreiðamanna (LHM) fyrir opnu málþingi með öllum stærstu samtökum hjólreiðamanna og þar var samþykktur fullur stuðningur við þær kröfur sem LHM hafði sent Alþingi um að hjólreiðafólki verði ekki bannað að nota forgangsakreinar eins og frumvarp sem liggur fyrir Alþingi gerir ráð fyrir.
Fleiri greinar...
- Um Fjallabaksleið í Fjallahjólaklúbbinn
- Þversagnir í öryggismálum hjólafólks
- Bláfjallahringur að vetrarlagi
- Hjólavænar borgir? París og Reykjavík
- Hin árlega Nesjavallaferð 2007
- Hjólaferð um Gamla Þingvallaveg og Leggjarbrjót
- Ferðasögur og myndir úr félagsstarfinu:
- Er vinstri umferð í Reykjavík?
- Leitin að leiðinni í álverið
- Hjólreiðar: Áhrif á heilsufar
Kveðskapur
Hér er safn af kveðskap um hjólið sem hefur birst í fréttabréfum klúbbsins í gegnum tíðina.
