- Details
- Ferðanefndin
Fjallahjólaklúbburinn fer í sína árvissu hjólaferð til Viðeyjar, þriðjudaginn 28.júní 2011. Mæting við Viðeyjarferju, Skarfaklettum 3 ekki síðar en kl 19:00, brottför er 19:15. Kaupa þarf miða í ferjuna (kr 1.000,00), og ef fólk vill fá sér vöfflukaffi í Viðeyjarstofu, þá er stundum tilboð í miðasölunni, sigling og vaffla. Það verður hjólað um eyjuna, sagan skoðuð sem og hús og minjar. Siglt aftur til baka kl 22:00
- Details
- Einar Kristinsson
Íslenski fjallahjólaklúbburinn stendur fyrir fjölskylduferð umhvítasunnuhelgina. Farið verður á tjaldsvæðið Þórisstaði í Svínadal og tjaldað þar alla helgina og hjólað síðan út frá því tjalsvæði. Hægt verður að vera í bæði tjöldum og ferðavögnum. Þar sem gist verður á sama tjaldstæðinu allan tímann getur öll fjölskyldan komið með óháð því hvort allir vilji taka þátt í hjólaferðum eða ekki.
- Details
- Einar Kristinsson
Nú styttist í stærstu hjólreiðahátíð ársins, hina árlegu Bláalónsþraut á fjallahjóli. Hátíðin fer fram sunnudaginn 12. júní og verður það í 16. skipti sem hún er haldin. Þátttökumet var slegið í fyrra en þá tóku 324 keppendur þátt. Bláalónsþrautin er fyrst og fremst hjólreiðamót fyrir almenning og tilvalin fyrir fólk sem vill reyna aðeins á sig og njóta góðrar útiveru og fagurs landslags á Reykjanesi í leiðinni og njóta Bláa Lónsins að keppni lokinni.
Keppnin verður með svipuðu sniði og fyrri ár en tvær mikilvægar breytingar breytingar eru gerðar.
- Details
- Einar Kristinsson
Vesturgatan - fjallahjólreiðakeppni Höfrungs (Svalvogahringurinn) verður hjóluð í annað sinn laugardaginn 16. júlí 2011.
Keppnin hefst á rásmarki við sundlaugina á Þingeyri og verður hjólað saman á eftir leiðsögubíl á malbiki að flugvellinum (2k) þar sem keppnin verður gefin frjáls. Leið liggur í gegnum bæjarhlaðið á Kirkjubóli, upp Kirkjubólsdal og yfir Kvennaskarð (Kaldbakur), um 600m hækkun, niður Fossdal niður að sjó (Stapadal í Arnarfirði), eftir ýtuvegi Elíasar Kjaran inn Dýrafjörð, (um 28k á grófum malarvegi,sand- og grjótfjöru) inn að flugvellinum og frá flugvellinum um 2k á malbiki inn á Þingeyri. Endamark er á sama stað og rásmark, við sundlaugina á Þingeyri. Heildarvegalengd er 55 km og heildarhækkun 1080m.
- Details
- Einar Kristinsson
Ágætu félagar. Ferðandefnd þakkar góða þátttöku í fyrstu tveim sumarferðum klúbbsins og nú er komið að þeirri þriðju röðinni.
Nú verður sett í torfærugírinn því að þessu sinni verður hjólað yfir Svínaskarð. Grýttur og grófur vegur og brattur á köflum. Svínaskarðið er gömul þjóðleið og liggur á milli Móskarðahnjúka og Skálafells. Þetta er ekta fjallahjólaleið sem hentar þeim sem vilja óhreinka hjólið og reyna á dekk og dempara. Þegar komið er á háskarðið í um 600 m hæð liggur leiðin niður á Kjósarskarðsveg og er einstaklega fallegt og skemmtilegt að rúlla þangað niðureftir. Afgangurinn er auðveldur yfirferðar og liggur leiðin upp á Þingvallaveg og lýkur ferðinni á sama stað og hún hófst. Takið nesti til eins dags og umfram allt: hjálma.
- Details
- Páll Guðjónsson
Bæklingurinn Hjólreiðar - frábær fararmáti kom út í byrjun mánaðarins. Honum er ætlað að hvetja til hjólreiða og auka öryggi hjólreiðafólks með fræðslu um hvernig öryggast er að hjóla með þeirri tækni sem við höfum kallað Samgönguhjólreiðar. Einnig eru ábendingar til bílstjóra og sýndar skemmtilegar hliðar hjólreiða.
- Details
- Fjölnir Björgvinsson
- Details
- Einar Kristinsson
Nesjavellir – Eurovision
Ferðanefnd Fjallahjólaklúbbsins hefur ákveðið að halda í hefðina og fara til Nesjavalla 14 maí næstkomandi. Að þessu sinni er um nokkurs konar lúxusferð að ræða, það verður gist í tveggja manna herbergjum á Hótel Hengli. Uppábúin rúm, handklæði, tveggja rétta kvöldverður og morgunverður innifalinn. Barinn verður opinn, gufa, heitur pottur, o.m.fl. Hér má lesa nánar um hótelið og það sem það hefur upp á að bjóða.
Fleiri greinar...
Síða 32 af 63