- Details
Hjólum til framtíðar, ráðstefna um eflingu hjólreiða til samgangna
Í upphafi samgönguviku í ár, þann 16. september, standa Landssamtök hjólreiðamanna og Hjólafærni á Íslandi fyrir ráðstefnu með yfirskriftina Hjólum til framtíðar. Ráðstefnan verður haldin í Iðnó. Áhersla ráðstefnunnar er á hvernig stuðla megi að auknum hjólreiðum, hver staðan sé á Íslandi og hvert stefnan sé tekin.
Þrír erlendir fyrirlesarar eru væntanlegir til landsins vegna ráðstefnunnar en auk þeirra munu íslenskir fyrirlesarar flytja erindi. Þar á meðal er innanríkisráðherra sem ávarpar ráðstefnuna og tekur þátt í pallborðsumræðum.
Dagskrá og skráning hér