Fjallahjólaklúbburinn Fjallahjólaklúbburinn
  • Forsíða
  • Fréttir
  • Pistlar
    • Pistlar
    • Ferðasögur og myndir
    • Hjólaleiðir
    • Útbúnaður
    • Saga reiðhjólsins á Íslandi
      • I. Inngangur
      • II. Alþjóðlegt baksvið
      • III. Reiðhjólið á Íslandi
      • IV. Samtök hjólreiðamanna
      • V. Reiðhjólið í umferðinni
      • VI. Verslun, viðgerðir og smíði
      • VII. Hjólakeppni
      • VIII. Ferðalög
      • IX. Lokaorð
      • Gamlar ljósmyndir
    • Kveðskapur
  • Dagskrá
    • Höfuðstöðvarnar Sævarhöfða 31
    • Hjólað um höfuðborgarsvæðið
    • Dags og helgarferðir
    • Viðburðir annarra
    • Dagskrá framundan
  • Hjólhesturinn
  • Klúbburinn
    • Um okkur
    • Gangið í klúbbinn
    • Umræðan
      • Facebook síða ÍFHK
      • Facebook grúppan
    • Afslættir til félagsmanna
    • Stjórn ÍFHK og nefndir
    • Saga ÍFHK
    • Samþykktir ÍFHK
  • English
Fjallahjólaklúbburinn Fjallahjólaklúbburinn
  • Forsíða
  • Fréttir
  • Pistlar
    • Pistlar
    • Ferðasögur og myndir
    • Hjólaleiðir
    • Útbúnaður
    • Saga reiðhjólsins á Íslandi
      • I. Inngangur
      • II. Alþjóðlegt baksvið
      • III. Reiðhjólið á Íslandi
      • IV. Samtök hjólreiðamanna
      • V. Reiðhjólið í umferðinni
      • VI. Verslun, viðgerðir og smíði
      • VII. Hjólakeppni
      • VIII. Ferðalög
      • IX. Lokaorð
      • Gamlar ljósmyndir
    • Kveðskapur
  • Dagskrá
    • Höfuðstöðvarnar Sævarhöfða 31
    • Hjólað um höfuðborgarsvæðið
    • Dags og helgarferðir
    • Viðburðir annarra
    • Dagskrá framundan
  • Hjólhesturinn
  • Klúbburinn
    • Um okkur
    • Gangið í klúbbinn
    • Umræðan
      • Facebook síða ÍFHK
      • Facebook grúppan
    • Afslættir til félagsmanna
    • Stjórn ÍFHK og nefndir
    • Saga ÍFHK
    • Samþykktir ÍFHK
  • English
Details
Páll Guðjónsson
Páll Guðjónsson
07. mars 1999

Nýja klúbbhúsið okkar Brekkustíg 2

Meira …

Details
Páll Guðjónsson
Páll Guðjónsson
30. nóvember 1998

Svipmyndir frá uppskeruhátíð Íslenska Fjallahjólaklúbbsins 1998

Meira …

Details
Björn Finnsson
Björn Finnsson
30. nóvember 1998

Að loknu sumri

Haustar að og húmið seyðir
horfa menn á fleiri leiðir.
Nám og skólar, nautnir fanga
nú fá hjól í skjóli að hanga.

Með þessum línum vil ég þakka öllum þeim sem glatt hafa sjálfa sig og mig, við hjólreiðar hvert þriðjudagskvöld í 5 mánuði, fyrir ánægjustundir í góðu veðri og fjölbreyttu umhverfi. Við höfum víða farið en trúlega er þó minnisstæðust hjólaferðin í Viðey. Ystu mörk ferðasumarssins voru að öðru leiti Álftanes - Heiðmörk - Hafravatn - Geldinganes. Það er notalegt að hjóla með góðu fólki og njóta náttúru og veðurblíðu í og við borgina, það vita þeir einir er komu með.

Allir þeir sem ekki komu með
og ekki gátu sálu sinni léð
sumarstund í hjólagleði.
Munu geta magnað sína sál
svo borið geti á bál
böl og leti.

Björn Finnsson

Details
Björn Finnsson
Björn Finnsson
30. nóvember 1998

Hjólabyltingin.

Sjá! í hæðunum glampar og glitrar,
ganga? þar bardaga menn.
Sjá! þetta eru verur vitrar
vasklegir hjólreiðamenn.
Það glampar á hjálma og glitrar króm
gallharðir vöðvar við keðjuhljóm,
litríkust klæði, líflegt bros,
létt er lund við regn og vos.
Fylkingar streyma til fórna, við mál
fast skal berjast, fram skal sál.
Lífsmáta nýjan skal leiða á, þjóð
líkna þeim örmu á hjólreiða þingi,
setja þá aumu aftast í ljóð
umvafða í gjarðahringi,
keðjuhlekki til kvalræðis þeim
kolryðgaða með ískurhreim.
Læra skulu á lipur hjól,
Líflegt verður sálarrjól. 

Björn Finnsson

Details
Stjórn Hálendishópsins.
Stjórn Hálendishópsins.
28. nóvember 1998

Með hálendinu - gegn náttúruspjöllum

Meira …

Details
Páll Guðjónsson
Páll Guðjónsson
28. nóvember 1998

Með hálendinu - gegn náttúruspjöllum - 2

Meira …

Details
Páll Guðjónsson
Páll Guðjónsson
22. nóvember 1998

Umhverfisvænni farkostir

vaenni-b.jpg20.- 22. nóvember 1998 var haldin í Ráðhúsi Reykjavíkur ráðstefna og sýning á umhverfisvænni farkostum. Að sjálfsögðu mættu fulltrúar Íslenska Fjallahjólaklúbbsins og fengu að setja upp sýningarbás til kynningar á hollasta, ódýrasta og umhverfisvænsta valkostinum í samgöngumálum nútímans.


 

Meira …

Details
15. nóvember 1998

Búið ykkur undir veturinn

Eins og svo oft áður er vetur konungur í þann veginn að ganga aftur í garð. Í huga margra er veturinn sá tími sem leggja ber hjólinu. Sú skoðun er sprottin af fáfræði því í boði er ýmis búnaður á hjólið svo og fatnaður sem auðvelda “baráttu” við vetur konung. Ef þú lesandi góður hefur einhverntíma notað skíði, þá skal á það minnst að vetrarhjólreiðar eru ekki verri kostur til útiveru hvað þá til ferðalaga í dagsins önn.

Meira …

Details
Magnús Bergsson
Magnús Bergsson
28. október 1998

Eldhnötturinn

Það var hægur andvari að norðan með þurrviðri og ekki snjókorn á jörðu, þegar ég geystist seint um kvöld eftir stígnum í Fossvogsdalnum. Ég var í góðu skapi. Bílarnir voru víðs fjarri minni leið og í gegnum ljósmengun höfuðborgarinnar hafði ég orðið vitni að stjörnuhrapi úr Elliðaárdalnum.

Skyndilega kvað við mikil hundgá og hróp einhvers manns í myrkrinu. Ég snarhemlaði og losaði bandspotta úr frambremsunni. Í sömu andrá kom til mín svartklædd vera sem sótbölvaði mér í sífellu og spurði “hvort ég ætlaði að drepa hundinn?” Ég stundi við. Þessi svartklædda manneskja og þetta hundspott höfðu í einni svipan komið mér í virkilega fúlt skap. Um leið og ég settist á hjólið minnti ég manninn á að þessi metersmjóa ræma á stígnum tilheyrði hjólreiðafólki. Hann ætti að gæta að því hvar hundurinn ráfaði og ljósið á hjólinu hefði ekki verið þess megnugt að flóðlýsa svartan felubúning þeirra.

Meira …

Details
Jón Örn Bergsson
Jón Örn Bergsson
10. September 1998

Jökulheimar 1998

Það hefur orðið að venju innan klúbbsins að fara n.k. fjölskylduferðir. Ferðir sem eru léttari yfirferðar en aðrar og henta þannig vel bæði byrjendum og fjölskyldufólki. Ein þannig ferð var farin upp í Veiðivötn dagana 21.-23. ágúst og er óhætt að segja að hún hafi heppnast að öllu leiti vel, nema hvað undir lok ferðarinnar gerðist smá óhapp, sem sagt verður frá síðarmeir.

Meira …

Details
Arnþór Helgason
Arnþór Helgason
06. júní 1998

Hjólað í Skotlandi

Hjólað í Skotlandi Undirbúningur
Síðastliðið vor fór Elín, eiginkona mín og stýrimaður á Orminum langa, að skoða skóla í Newcastle á Norðimbralandi. Fannst okkur hjónum þá tilvalið að nota tækifærið til þess að hjóla um Skotland og kynnast því hvernig þar væri umhorfs.
Að sið góðra manna hófum við undirbúning ferðarinnar strax í febrúar. Ég sendi út fyrirspurn á Alnetinu um það hvernig væri hægt að fá leigt tveggja manna hjól í Bretlandi. Þá bað ég einnig um upplýsingar um hjólreiðaleiðir.

Meira …

Details
30. maí 1998

Aðgengi hjólreiðamanna

Í upphafi kjörtímabils R-listans sem nú er að líða, batt hjólreiðafólk vonir um að eitthvað nýtt myndi gerast í málefnum hjólreiðamanna. Mörg undanfarin ár hafði lítið sem ekkert verið gert í þessum efnum og leit svo út að í huga embættismanna væri fyrirbærið “reiðhjól” vart af þessum heimi eða þá helst bara leiktæki fyrir börn.

Meira …

Details
Heimir H. Karlsson
Heimir H. Karlsson
30. maí 1998

Hvers vegna hjólar þú?

Meira …

Details
Alda Jóns og Páll Guðjóns
Alda Jóns og Páll Guðjóns
26. maí 1998

Fjölskylduferð til Nesjavalla, 25-26 maí 98

Hjólað til NesjavallaÆtla ég nú að segja ykkur aðeins frá fjölskylduferð sem Íslenski Fjallahjólaklúbburinn stóð fyrir á Nesjavelli í vor og tókst í alla staði frábærlega þrátt fyrir mjög mikla rigningu fyrri daginn og mótvind seinni daginn. Það var um 25 manna hópur sem mætti við Árbæjarsafn upp úr hádeginu á laugardeginum. Fólkið á aldrinum 13 – 55 ára og einnig voru með 4 börn frá 16 mánaða til 5 ára í aftaníkerrum og eitt á tengihjóli.

Meira …

Details
Bára Bryndís Sigmarsdóttir
Bára Bryndís Sigmarsdóttir
20. maí 1998

Nesjavellir - Fyrsta ferðin með ÍFHK

Frá því að ég var 5 ára, og vinkona mín hafði ýtt mér í 1000 skipti af stað út í óvissuna, niður stutta brekku á hjálpardekkjalausu tvíhjóli og ég fann langþráð jafnvægið, hef ég elskað að hjóla og, að undanskildum fyrstu árunum eftir bílpróf, gert mikið af því.

Meira …

Details
Magnús Bergsson og Helgi Erlendsson
Magnús Bergsson og Helgi Erlendsson
12. mars 1998

Tengivagnar fyrir reiðhjól 2

Sá misskilningur er afar útbreiddur hér á landi að tengivagnar fyrir börn séu hættulegir. Það mjög slæmt því þessir vagnar eru síst hættulegri en bílar. Við búum í samfélagi sem tekur lítið sem ekkert tillit til hjólreiðamanna en öðru máli gegnir þegar bílstjórar mæta furðufarkostum eins og reiðhjóli með skærgulum tengivagni, þá virðast þeir taka meira tillit til hjólreiðafólksins.

Meira …

Details
Páll Guðjónsson
Páll Guðjónsson
12. mars 1998

Hjólreiðar eru líka fyrir fatlaða

Þó lítið hafi sést til sérhannaðra reiðhjóla fyrir fatlaða hérlendis ennþá, er nú búið að laga nokkrar leiðir í Reykjavíkurborg það mikið að það ætti að vera orðið raunhæft að taka svona hjól í notkun hér.

Meira …

Details
Heimir Vaff
Heimir Vaff
18. febrúar 1998

Bæjarferðin

Miðvikudaginn 18. febrúar 1998 fór ég í útréttingabæjarferð eftir hádegið. Fyrir hádegið var ég á lesstofu Árnagarðs að lesa „Okkur“ eftir Zamyatin. Þeirri bók er skipt í fjörutíu kafla sem söguhöfundurinn kallar skýrslur eða færslur. Það er vegna áhrifa frá henni sem ég skipti þessum pistli í færslur.

Meira …

Details
Páll Guðjónsson
Páll Guðjónsson
02. febrúar 1998

Umfjöllun í MBR

Eftirfarandi er umfjöllun MBR um heimsókn blaðamanns MBR til Íslands og heimsókn hans til ÍFHK:

THE ICEMEN COMETH

And you think we have it cold. mbr made a flying visit to Reykjavik, home of Magnus Magnusson, Brennivin and the Vikings - not the big beardy blokes with horny helmets but the Icelandic Mountain Bike Club

Meira …

Details
30. nóvember 1997

Af áhuga- og stjórnleysi.

Oft heyrast kvartanir hjólreiðafólks vegna viðmóts og þekkingarleysis sölumanna í hjólreiðaverslunum. Það skal tekið strax fram að ekki er verið að dæma alla sölumenn og að hér er ég ekki aðeins að lýsa minni persónulegu skoðun, heldur skoðun fjölda fólks sem hefur rætt þessi mál við mig.

Meira …

Fleiri greinar...

  1. Kvöld í menningarmiðstöð hjólreiðamanna
  2. Hvað er svona frábært við það að þeysast út um allt í sokkabuxum og með einangrunarplast á hausnum ?
  3. Vetrarhjólreiðar
  4. Heilsutólið - Hjólið
  5. Hvað varð um hjólalöggunna?
  6. Rafalar fyrir reiðhjól
  7. Veiðivötn 1997 - Ólafur Rafnar Ólafsson
  8. Veiðivötn 1997 - Jón St. Kristjánsson
  9. Undirbúningur fyrir ferðalög á reiðhjóli.
  10. Hreint loft, betri líðan

Pistlar

Útbúnaður

Ferðasögur og myndir

Kveðskapur

Hér er safn af kveðskap um hjólið sem hefur birst í fréttabréfum klúbbsins í gegnum tíðina.

Hjólaleiðir

Síða 23 af 27

  • 18
  • 19
  • 20
  • 21
  • 22
  • 23
  • 24
  • 25
  • 26
  • 27

Fjallahjólaklúbburinn
Netfang: ifhk@fjallahjolaklubburinn.is
Kt. 600691-1399
Banki: 515-26-600691

Vafrakökur og persónuvernd

Vefur unninn af Hugríki.is.