- Details
- Páll Guðjónsson
- Details
- Jóhann Leóson
Ágæti lesandi,
Hvað er svona frábært við það að þeysast út um allt í sokkabuxum og með einangrunarplast á hausnum ?
Þessa spurningu fékk ég á mig þar sem ég sat fyrir utan Hótel Selfoss og hámaði í mig orkubita, þetta var nú bara ansi góð spurning, ég "fullorðinn" maðurinn á reiðhjóli útí sveit klæddur einsog maðurinn sagði, en svarið er jú bara að þetta er einsog einhverstaðar stendur, alveg einstök tilfinning.
- Details
Þá er veturinn að skella á og reiðhjólið sem líkamsþjálfunartæki fyrst
að sýna sýnar bestu hliðar. Það er alveg ástæðulaust að koma því fyrir í
geymslu. Það eru aðeins gamlar kreddur að hjólið sé ónothæft þó að sé
hálka, snjór og kuldi. Til eru nagladekk og skjólgóð föt og yfir stóra
skafla er alltaf hægt að teyma hjólið. Helsta vandamál vetrarhjólreiða
eru meira og minna stjórnlausir bílar sem innihalda bílstjóra með
afskaplega takmarkað útsýni. Það ætti því fyrst og fremst að leggja
bílnum þar sem þeir geta valdið ómældum skaða. En hvað um það, það er
ekki skynsemin sem knýr fólkið út í bílana heldur slæmur ávani. Hér á
eftir kemur uppskrift af því hvernig best er að takast á við vetur
konung án þess að þurfa að leggja sig í mikla hættu gagnvart bílaumferð,
sóðaskap sem henni fylgir, kulda, vosbúð og láta hjólið koma sem best
undan vetri.
- Details
- Björn Finnsson
Ef þér er tamur frelsis fótur
finna mátt’ hann stíga á sveif.
Heilsubót og heilla nótur
hamra og fríska fyrrum kveif,
ella visinn verði og ljótur,
vesæl, gömul bensín sleif.
Hjarta styrkist, stælist kroppur
sterk er hugsun fersk og ný.
Verndar höfuð valinn toppur,
vinda fælir úlpa hlý.
Strit til gleði, stigsveif snúin
sterkleg keðja hjólið knýr.
Síðar verður sæll og lúinn
sérlega í höfði skýr.
Varla styrkist við það trúin
við að eignast vélakýr.
Farartækið fannst þú vinur
fótaknúið heilsutól.
Útgjöld þín við akstur, hrynur
er þú eignast fjallahjól.
Björn Finnson.
- Details
- Heimir H. Karlsson
Þessi spurning vaknaði eftir að ég hafði lesið greinina um lögreglumann á reiðhjóli í Lögreglublaðinu eitt kvöldið í klúbbhúsi Íslenska Fjallahjólaklúbbsins.
- Details
- Details
- Ólafur Rafnar Ólafsson
- Details
- Páll Guðjónsson
- Details
- Magnús Bergsson
Fátt er skemmtilegra en að eiga stefnumót við móður náttúru á reiðhjóli, hljóðlaust og án þess að menga sitt nánasta umhverfi. Því miður eru það allt of fáir sem hafa treyst sér til að nota reiðhjólið til ferðalaga. Getur það stafað af vanþekkingu og vanmáttarkennd gagnvart náttúrunni t.d. vegna mikillar víðáttu og hræðslu við að takast á við hana í allri sinni mynd?
- Details
- Valdemar Gisli Valdemarsson
Hafa ekki allir upplifað þá makalausu tilfinningu sem hríslast um skrokkinn við að anda að sér hreinu lofti úti í náttúrunni. Ilmur skóga, lyktin í fjörunni eða bara ilmurinn af mold og gróðri. Það er ákveðið "kikk" að rápa um sveitir, labbandi eða hjólandi og anda að sér ilmi náttúrunnar. Það hressir, styrkir og bætir geð. En hversvegna? Er það lyktin? Er meira súrefni úti í náttúrunni? Er það rakinn? Eða er það bara ímyndun að sveitaloftið sé eitthvað betra en þurrt og fúlt inniloft eða mengað borgarloft? Varla. Loftið utanhúss er hreinna en inniloftið, þá sérstaklega utan bæjar eða í úthverfum. En það er annað sem er öðruvísi. Fyrirbæri sem hefur undanfarin ár vakið æ meiri athygli fræðinga og áhugamanna.
- Details
- Marty Basch
Hér gefur að líta kafla úr ferðasögu Marty Basch frá New Hampshire í Nýja Englandi, sem hjólaði umhverfis landið sumarið 1996. Hann leggur ekki mikla áherzlu á hjólaþátt ferðarinnar en það er áhugavert að sjá hvernig hann upplifir landið. Hvað vekur athygli hans og hverju hann sleppir. Rétt er að geta þess að hann skrifaði ferðasöguna á fartölvu og birti jafnharðan á Netinu. E.Á.
- Details
- Páll Guðjónsson
Nú er verið að byggja upp net hjólreiða- og göngustíga um Bretland sem mun innan 8 ára spanna 10000 km og liggja innan 3. km frá heimilum 20. milljóna Breta. Eftirfarandi er að mestu bein þýðing á kynningarefni Sustrans (Sustainable Transport) sem stendur að uppbyggingu hjólanetsins (National Cycle Network) með stuðningi Millenium (árþúsund) nefndarinnar, lottópeninga, samtaka bifreiða-eigenda auk fjölda annarra. Það væri vonandi að íslenskir stjórnmálamenn hefðu jafn ábyrga framtíðarsýn en stæðu ekki í endalausri uppbyggingu vegakerfisins sem aftur kallar á aukna umferð eins og margsannað er. Í könnun eftir hvíldardag bílsins í haust kom í ljós að mikill meirihluti Reykvíkinga vill draga úr einkabílanotkun en finnst vanta betri aðstöðu fyrir göngur og hjólreiðar og aukna þjónustu almenningsvagna.
- Details
- Magnús Bergsson
Með smá útsjónarsemi og þolinmæði getur þú farið næstum allra þinna ferða á reiðhjóli. Íslensku hjólreiðafólki bjóðast nú nýir valmöguleikar til að fækka óþarfa snatti á einkabílum umtalsvert. Um er að ræða tvenns konar tengivagna fyrir reiðhjól.
- Details
- Magnús Bergsson
Með smá útsjónarsemi og þolinmæði getur þú farið næstum allra þinna ferða á reiðhjóli. Íslensku hjólreiðafólki bjóðast nú nýir valmöguleikar til að fækka óþarfa snatti á einkabílum umtalsvert. Um er að ræða tvenns konar tengivagna fyrir reiðhjól.
- Details
- Páll Guðjónsson
Eins og áður hefur komið fram í Hjólhestinum er nú verið að byggja upp net hjólreiða- og göngustíga um Bretland sem mun innan 8 ára spanna 10000 km og liggja innan 3. km frá heimilum 20. milljóna Breta. Eftirfarandi er að mestu bein þýðing á kynningarefni Sustrans (Sustainable Trans-port) sem stendur að uppbyggingu hjólanetsins (National Cycle Network) með stuðningi Millenium (árþúsund) nefndarinnar, lottópeninga, samtaka bifreiðaeigenda auk fjölda annarra. Það væri vonandi að íslenskir stjórnmálamenn hefðu jafn ábyrga framtíðarsýn en stæðu ekki í endalausri uppbyggingu vegakerfisins sem aftur kallar á aukna umferð eins og margsannað er. í könnun eftir hvíldardag bílsins í haust kom í ljós að mikill meirihluti Reykvíkinga vill draga úr einkabílanotkun en finnst vanta betri aðstöðu fyrir göngur og hjólreiðar og aukna þjónustu almenningsvagna.
- Details
- Páll Guðjónsson
Eftirfarandi eru glefsur úr framlagi Súsönnu Svavarsdóttur til íslenskrar kvennabaráttu sem birtist í því annars ágæta blaði: Vera „blað kvennabaráttu“, mars 1996 sem gefið er út af Samtökum um kvennalista.
- Details
- Karl G. Gíslason
- Details
- Arnþór Helgason
Formáli: Arnþór Helgason og Elín Árnadóttir keyptu tveggja manna hjól af tegundinni TREK T-100 árið 1993. Þau hafa lagt land undir fót, hjólað nokkrum sinnum austur í Grímsnes, til Akureyrar og vítt og breitt um Reykjavík og nágrannabyggðir. Þá tóku þau Orminn langa, eins og hjólið er kallað, eitt sinn með sér austur á firði og síðastliðið sumar fóru þau á Orminum vestan af Seltjarnarnesi austur á Stöðvarfjörð, um 670 km leið. Þau Arnþór og Elín eru á fimmtugs aldri og telja að fólki sem er á ömmu og afa-aldrinum leyfist að gista hjá bændum þegar farnar eru langferðir á hjólum. Því njóta þau lúxus-hjólreiða að sumarlagi.
- Details
- Óskar Dýrmundur Ólafsson
Eins og alþjóð er kunnugt þá hleypti Reykjavíkurborg af stað árlegum hvíldardegi bílsins 22. ágúst síðastliðinn. Dagurinn var fjármagnaður að hluta til með styrk frá evrópsku samtökunum „Car free cities“ (bíllausar borgir) og á móti lagði Reykjavíkurborg það til sem uppá vantaði. Fyrirtæki og stofnanir tóku svo þátt í að kynna daginn með kostun á auglýsingum. Markmiðið með hvíldardeginum var fyrst og fremst að vekja fólk til umhugsunar um áhrif umferðar á umhverfið, heilsu fólks og efnahag þjóðfélagsins og einstaklingsins.
- Details
- Ritnefnd
Fleiri greinar...
Kveðskapur
Hér er safn af kveðskap um hjólið sem hefur birst í fréttabréfum klúbbsins í gegnum tíðina.