Í mars 1999 var skrifað undir leigusamning til 5 ára á húsnæðinu að Brekkustíg 2. Eins og sést á myndunum hér að neðan þarf að leggja töluverða vinnu í að laga húsið og snyrta en þetta húsnæði. |
|
|
|
Húsið opnað í fyrsta skipti eftir að skrifað var undir leigusamninginn. |
|
|
|
Þetta er neðri hæðin, um það bil 35m2. Þar þarf að koma upp salerni í horninu og stiga upp. |
|
|
|
Ef horft er upp, má sjá að þar er ágætt loft með um 40m2 gólffleti þó varla mælist þar margir fermetrar. Þarna ætti að vera hægt að útbúa skemmtilega setustofu með blaða og bókasafninu okkar. |
|
|
|
Haraldur Tryggva, varaformaður, búinn að koma sér fyrir á efri hæðinni. |
|
|
|
Litist um uppi. Halli sýnir stærðarhlutföllin á þessum klippimyndum. |
|
|
|
|
|
|
Á þessari klippimynd sést vel gólfflöturinn á jarðhæðinni |
|
Á þessari klippimynd sést hversu mikil og góð lofthæðin er. |
|
Og að lokum svipast um úr horninu niðri. Eins og sjá má á þessum myndum er mikið verk framundan áður en við getum flutt starfsemina og þangað til verðum við eitthvað áfram í leiguhúsnæðinu að Austurbugt 3 með opið hús á fimmtudagskvöldum. Okkur bráðvantar sjálfboðaliða til að hjápa til við smíðar, þrif, málun, pípulögn, laga gólfið og að útvega efni og styrki til framkvæmdanna. Ef þú ert tilbúin/n til að hjálpa hafðu þá endilega samband við okkur, t.d. Magnús Bergsson eða Harald Tryggva. ©ÍFHK 1999 Myndir og texti Páll Guðjónsson |