
Þriðjudags kvöldferðir

Opið hús

Helgarferðir
Nýjustu fréttir og pistlar

Hjólað í Belgíu
Fyrir mann sem hjólar þúsundir kílómetra á Íslandi á ári hverju er draumur að fá að prófa að hjóla í öðrum löndum. Ég og vinur minn og nágranni , Pétur Hilmarsson á Ísafirði, höfum lengi átt þann draum að fara í hjólreiðatúr um Belgíu og smakka á...

Júníferðir
Tvo síðustu júnímánuði höfum við feðgar farið í rúmlega 3 vikna hjólaferðir um Evrópu, um leið og skóla er næstum lokið. Drengurinn (fyrst 7 og síðar 8 ára) hefur verið á 6 gíra tengihjóli, sem tryggir að við verðum ekki viðskila á leiðinni.

Reykjavík – Skagafjörður um Kjöl
Síðasta sumar átti ég erindi norður í Skagafjörð og ákvað að fara hjólandi heiman að úr Reykjavík og yfir Kjöl. Ferðinni var heitið að Löngumýri sem er skammt frá Varmahlíð. Þjóðkirkjan rekur fræðslusetur á Löngumýri þar sem áður var húsmæðraskóli. Ég var á...

Mat á árangri hjólreiðastefnu Oslóarborgar
Nýverið var fór fram mat á árangri hjólreiðastefnu Oslóarborgar 2015-2024. Mér er ekki kunnugt um að sambærileg óháð úttekt hafi verið gerð á Íslandi en kannski gæti þessi skýrsla veitt innblástur fyrir gerð svipaðrar skýrslu um hjólreiðastefnu...
Helgarferðir – leiðarlok
Sumarið 2024 var ekki beint útilegusumar, grenjandi rigning flesta daga og tjaldsvæðin á floti. Þegar ég skipulegg útilegur, þá fer ég ekki af stað nema ég fái sæmilega þurrt veður í 3-4 daga. Miða við að ég sé á bíl og geti elt góða veðrið með...

Opið hús - Dekkjaskipti
Opið hús á Sævarhöfða 31, mánudaginn 7. apríl 2025 frá kl. 18:00 til 21:00. Þar verður sýnikennsla, hvernig eigi að skipta um dekk á reiðhjóli. Öll verkfæri til staðar. Fólk getur prófað að skipta sjálft og fengið aðstoð hjá reynsluboltum...

Hjólhesturinn 2025 kominn út
Nú ættu allir virkir félagsmenn Fjallahjólaklúbbsins að hafa fengið tímaritið okkar Hjólhestinn inn um bréfalúguna ásamt félagsskírteini 2025 ef félagsgjaldið hefur verið borgað.

Aðalfundur Íslenska fjallahjólaklúbbsins 29. apríl 2025
Aðalfundur Íslenska fjallahjólaklúbbsins verður haldinn þriðjudaginn 29. apríl 2025 kl. 20 í klúbbhúsinu Sævarhöfða 31.

Viltu skrifa í árlega tímaritið okkar, Hjólhestinn?
Venju samkvæmt hefst vinna við árlega tímaritið okkar Hjólhestinn núna í upphafi árs og auglýsum við hér með eftir efni. Það er laust pláss fyrir ýmisskonar pistla, ferðasögur, reynslusögur úr starfi klúbbsins og allskonar. Við látum samt aðra að...

6.-7. júlí – Siglufjarðarskarð og Kolugljúfur - helgarferð
Helgina 6.-7. júlí förum við í helgarferð um Siglufjarðarskarð og Kolugljúfur.

Snæfellsnes – helgarferð – 3 dagar, 15.-17. júní
Við byrjum á að hjóla á laugardeginum 15 júní upp í Hítardal. Þar er gríðarleg náttúrufegurð, hjólaleiðin er að mestu á góðum malarvegi, en við munum líka hjóla einhverja slóða til að skoða nálæga dali. 40-50 km, erfiðleikastig 5 af 10. Gistum í...

Tweed Ride Reykjavík 2024
Hin árlega Tweed Ride Reykjavík skrúðreiðin sem Reiðhjólaverzlunin Berlin stendur fyrir var farin 8. júní. Aðalmálið er að klæða sig upp í gamaldags fín föt (sirka 1930 - 1960) og hjóla saman.

Þriðjudagskvöldferðirnar komnar af stað
Alla þriðjudaga í sumar leggjum við af stað frá Sævarhöfða 31. Á sama tíma leggja Reiðhjólabændur af stað, en við förum aðeins hægar yfir en þeir. Öll velkomin að taka þátt, börn yngri en 14 ára skulu þó vera í fylgd með foreldrum eða forráðamönnum.

Klúbbhúsið Brekkustíg kvatt á sumardaginn fyrsta
Við ætlum að kveðja Klúbbhúsið á táknrænan hátt með því að hjóla frá Brekkustíg 2 yfir að Sævarhöfða 31 og taka þar hefðbundið vöfflukaffi í nýju aðstöðunni okkar. Við reiknum með að leggja af stað kl. 14:00 25 apríl 2024. Vinsamlega merkið við...

Bifröst – Hreðavatn
Eurovision teitið verður í sumarbústað nálægt Bifröst, Borgarfirði. Við munum grilla eitthvað gott, horfa á söngvakeppnina, ræða landsins gagn og nauðsynjar, dýfa okkur ofan í heitan pott, það verður gleði og glaumur. Gítarar og harmonikkur...

Tyler Wacker – ævintýramaður á Ísafirði
Í Hjólhestinum sem kom út árið 2021 er grein eftir Tyler Wacker. Í henni lýsir hann leið sinni í skólann, þegar hann hjólaði frá San Fransiskó til Ísafjarðar. Hér á eftir kemur framhaldssagan. Tyler settist svo sannarlega ekki í helgan stein þó...

Reykjaneseldar
Þriðja eldgosið á Reykjanesskaganum hófst í júlí 2023. Þar eð ég komst bara einu sinni upp að gosinu í Meradölum árið 2022, þá fór ég eins oft og ég gat að þessu gosi, eða 5 sinnum. Fyrstu þrjár ferðirnar voru töluvert undir væntingum. Í fyrstu...

Siglufjarðarskarð
Siglufjarðarskarð. Nafngiftin ein og sér ýtir við manni. Skarð, hátt og tilkomumikið, torsótt, þrungið sögu, sorgum og sigrum. Nauðsynleg samgönguæð eitt sinn, alræmt veðravíti, tenging við umheiminn sem ávallt skyldi umgangast með tilhlýðilegri...

Hjólað til Rússlands
Það birtist frétt í vetur um straum flóttamanna frá Rússlandi inn í Finnland og flestir þeirra komu hjólandi að landamærunum. Þetta kallaði fram minningar um skemmtilega hjólaferð sem ég og Frosti Jónsson fórum 2010 frá Helsinki í Finnlandi, að...

Ísafjörður heimsóttur
Oft fer ég vestur á Ísafjörð, enda ættuð þaðan og tek iðulega reiðhjólið með. Það hefur margt breyst á Ísafirði síðan ég var krakki. Þá voru engar gangstéttar, allir deildu holóttum malargötum, akandi, gangandi og hjólandi. Engir voru hjálmarnir og...

Hvað er á dagskránni hjá okkur sumarið 2024
Það er alltaf eitthvað í gangi hjá okkur. Verkstæðið og klúbbaðstaðan á Sævarhöfða 31 er opin vikulega á mánudögum. Á þriðjudögum hjólum við um höfuðborgarsvæðið. Mánaðarlega er amk. ein skipulögð helgarferð og aldrei að vita nema fleira verði...
Hjólhesturinn - tímarit Fjallahjólaklúbbsins
Atburðaalmanak
To Sunnudagur 12 maí 2024
Eurovision teitið verður í sumarbústað nálægt Bifröst, Borgarfirði. Við munum grilla eitthvað gott, horfa á söngvakeppnina, ræða landsins gagn og nauðsynjar, dýfa okkur ofan í heitan pott, það verður gleði og glaumur. Gítarar og harmonikkur velkomnar.
Við erum með bústaðinn frá föstudegi fram á mánudag, svo fólk getur haft smá frelsi með komu og brottför.
Föstudagur:
Mæting upp úr 18:00. Kl 20:00 munum við fara í stuttan hjólatúr um nágrennið, röltum upp á Grábrók og hjólum meðfram Hreðavatni. Förum að hylnum við fossinn, þeir sem vilja kæla sig geta stungið sér til sunds. Við getum kíkt niður að fossinum Glanna og Paradísarlaut. Mikil náttúrufegurð, 20 km á góðum slóðum, erfiðleikastig 4 af 10.
Laugardagur:
Við munum hjóla leið 13 úr Hjólabók Ómars Smára, Norðurá, Gljúfurá. 40 km áætlaður ferðatími 6-7 tímar. Búast má við smá torfærum og erfiðleikastigið er 6 af 10. Eftir hjólatúrinn er það svo pottadól, grill og Eurovision. Áfram Hera! Fólk tekur með kjöt/fiskmeti sem það vill grilla, Fjallahjólaklúbburinn býður upp á kartöflur, grænmeti, meðlæti og eftirrétt. Vegan fólk tekur með buff eða annað sem það vill snæða. Bæði grill og ofn á staðnum.
Sunnudagur:
Þá er það leið 12 úr Hjólabókinni, 45 km en eitthvað auðveldari leið, 4.5 tíma er áætlað að það taki að hjóla hana. Við munum snæða hádegisverð í Friðheimum í leiðinni. Kvöldverður ræðst af óskum gesta, það er hægt að borða á hótel Bifröst, Hraunsnefi eða á bensínstöð í Borgarfirði.
Mánudagur
Þrif og heimferð. Þá verða væntanlega allir horfnir á braut nema Hrönn, sem sér um ferðina. Hún hefur bara gott af því að þrífa bústaðinn á mánudaginn. Þátttaka tilkynnist með email til