Hittumst við bensínstöðina í Varmahlíð kl. 16 laugardaginn 6. júlí og förum samferða út að Hraunum í Fljótum (tæplega klst akstur). Leggjum á skarðið og toppum það með glæsibrag í 630 m. hæð. Förum svo niður í Skarðsdal, borðum gott nesti og klífum upp í skarð á nýjan leik og alla leið niður í bíl. Ökum síðan í gistingu á lóð Hulduhóls, bústaðar í nágrenni Sauðárkróks (gistum í bústaðnum sjálfum ef hann er laus) en aðgangur að klósetti og kaffihitun og öll slíku er í boði hvað sem öllu líður.  

Þetta er strembin ferð, fólk þarf að vera í góðu hjóla-og gönguformi.  Eða á rafmagnshjóli.  9 erfiðleikastig af 10. Vegalengd um 20 km.

Mögnuð saga, og landslag. Búnaður: Hjól og viðgerðardót. Tjald, svefnpoki, dýna og mergjaða ferðaskapið. Fararstjóri Ölrygur Sigurjónsson. Þar eð sama leið er farin til baka er hægt að létta leiðina með því að fara styttra upp í mót og snúa við.  Um leið og hópurinn kemur aftur niður, þá verðum við samferða og endum á sama tíma niðri við bílana.

Á sunnudeginum munum við hjóla 30 km hring niður að Kolugljúfri. Malarvegur um fallegar sveitir, ryk og rómantík. Endum daginn á að fá okkur hamborgara áður en leiðir skiljast og hver heldur til síns heima. Erfiðleikastig 4 af 10.

Ekkert þátttökugjald er í ferðina, sem er ætluð félagsmönnum Fjallahjólaklúbbsins.  Gott er að vita hverjir hafa hug á að koma með, tilkynnist til Örlygs með email This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..

 

Örlygur skrifaði pistil um Siglufjarðarskarð í síðasta Hjólhest sem má lesa hér: Siglufjarðarskarð

Og hér eru nokkrar myndir af kappanum í ýmsum ferðum.