Þriðjudags kvöldferðir

Á þriðjudögum hjólum við frá Sævarhöfða 31, kl. 19:00. Skoðið dagskrána

Opið hús

Á Sævarhöfða 31 er opið frá kl 19 til 21 fyrsta og þriðja mánudagskvöld hvers mánaðar. viðgerðar­aðstaða, kaffi og spjall.

Helgarferðir

Við erum með nokkrar helgarferðir á dagskrá í sumar. Skoðið dagskrána

Nýjustu fréttir og pistlar

Kvöldferðir á þriðjudögum
29-apríl-2026
Kvöldferðir á þriðjudögum

Þriðjudagskvöldferðirnar hafa verið á dagskrá síðan 1997.  Dagskráin er fjölbreytt en með hækkandi aldri þátttakenda hefur lengd og erfiðleikastig lækkað jafnt og þétt.  Og við förum klukkutíma fyrr af stað.  Enda stefnt að því að allir séu komnir...

Helgarferð – Fjárhústunga - 29. maí
16-apríl-2026
Helgarferð – Fjárhústunga - 29. maí

Við ætlum að taka sumarið snemma og fara í bústað í Fjárhústungu.  Góður bústaður með heitum potti, gasgrilli og meira að segja nettengingu.  Við erum raunar með bústaðinn í viku, frá 29 maí til 5 júní, svo fólk hefur smá sveigjanleika til að komast í...

Hjólað í Frakklandi
13-apríl-2026
Hjólað í Frakklandi

Eitt af því sem Frakkland er þekkt fyrir eru hjólreiðar. Hver kannast ekki við Tour de France? Rómantískar og nostalgískar myndir af Frakklandi eru fullar af reiðhjólum. París er umtöluð vegna stefnu borgarstjórnar að breyta henni úr bílaborg í...

Eltum sólina!
13-apríl-2026
Eltum sólina!

Sumarið 2025 fór í fyrsta skipti fram íslensk útgáfa af viðburðinum Chase The Sun (Eltum sólina).  Í stuttu máli er þetta persónuleg áskorun, ekki keppni, sem snýst um að hjóla frá austurströnd þátttökulands að vesturströnd sama lands á lengsta degi...

Viktor Arman  minning
13-apríl-2026
Viktor Arman minning

Sonur minn, Viktor Arman Kambizson lést af slysförum í hlíðum Kistufells 9 júní 2025.

Hjólað um hlið Hevítis
13-apríl-2026
Hjólað um hlið Hevítis

Já, ansi dramatískur titill, en þjóðgarðurinn heitir jú Hell’s Gate. Hell’s Gate National Park er þjóðgarður í suðurhluta Kenýa, um 90 km norðvestur af Nairobi, við suðurenda Naivasha-vatns í Great Rift Valley. Garðurinn er þekktur fyrir dramatískt...

Laugardagshjólatúrar veturinn 2025-26
12-apríl-2026
Laugardagshjólatúrar veturinn 2025-26

Þegar þriðjudagskvöldferðunum var að ljúka sumarið 2025 ákváðum við að kanna áhuga fólks á að hjóla saman á laugardögum í vetur. Ferðirnar eru þannig lagað ekki skipulagðar, nema fólki gefist kostur á að taka að sér forystu einhvern laugardaginn....

Hjólhesturinn 2026 kominn út
31-Mar-2026
Hjólhesturinn 2026 kominn út

Nú ættu allir virkir félagsmenn Fjallahjólaklúbbsins að hafa fengið tímaritið okkar Hjólhestinn inn um bréfalúguna ásamt félagsskírteini 2026 ef félagsgjaldið hefur verið borgað.

  Aðalfundur Íslenska fjallahjólaklúbbsins 14. apríl 2026
31-Mar-2026
Aðalfundur Íslenska fjallahjólaklúbbsins 14. apríl 2026

Aðalfundur Íslenska fjallahjólaklúbbsins verður haldinn þriðjudaginn 14. apríl 2026 kl. 19:30 í klúbbhúsinu Sævarhöfða 31.

Viltu skrifa í árlega tímaritið okkar, Hjólhestinn?
13-Jan-2026
Viltu skrifa í árlega tímaritið okkar, Hjólhestinn?

Venju samkvæmt hefst vinna við árlega tímaritið okkar Hjólhestinn núna í upphafi árs og auglýsum við hér með eftir efni. Það er laust pláss fyrir ýmisskonar pistla, ferðasögur, reynslusögur úr starfi klúbbsins og allskonar. Við látum samt aðra að...

Komdu með og prófaðu hjólaferð með okkur
15-Des-2025
Komdu með og prófaðu hjólaferð með okkur

Við ákváðum í haust að endurvekja laugardagshjólatúrana.  Það heppnaðist svona líka ljómandi vel, aldrei færri en 5 mætt og mesta þátttaka 16 manns.  Svo við ákváðum að halda áfram að hjóla í desember og eftir áramót.  Það verða sumsé vikulegir...

Hjólað í Belgíu
08-apríl-2025
Hjólað í Belgíu

Fyrir mann sem hjólar þúsundir kílómetra á Íslandi á ári hverju er draumur að fá að prófa að hjóla í öðrum löndum. Ég og vinur minn og nágranni , Pétur Hilmarsson á Ísafirði, höfum lengi átt þann draum að fara í hjólreiðatúr um Belgíu og smakka á...

Júníferðir
08-apríl-2025
Júníferðir

Tvo síðustu júnímánuði höfum við feðgar farið í rúmlega 3 vikna hjólaferðir um Evrópu, um leið og skóla er næstum lokið. Drengurinn  (fyrst 7 og síðar 8 ára) hefur verið á 6 gíra tengihjóli, sem tryggir að við verðum ekki viðskila á leiðinni.

Reykjavík – Skagafjörður um Kjöl
07-apríl-2025
Reykjavík – Skagafjörður um Kjöl

Síðasta sumar átti ég erindi norður í Skagafjörð og ákvað að fara hjólandi heiman að úr Reykjavík og yfir Kjöl.  Ferðinni var heitið að Löngumýri sem er skammt frá Varmahlíð.  Þjóðkirkjan rekur fræðslusetur á Löngumýri þar sem áður var húsmæðraskóli.  Ég var á...

Mat á árangri hjólreiðastefnu Oslóarborgar
07-apríl-2025
Mat á árangri hjólreiðastefnu Oslóarborgar

Nýverið var fór fram mat á árangri hjólreiðastefnu Oslóarborgar 2015-2024.  Mér er ekki kunnugt um að sambærileg óháð úttekt hafi verið gerð á Íslandi en kannski gæti þessi skýrsla veitt innblástur fyrir gerð svipaðrar skýrslu um hjólreiðastefnu...

Helgarferðir – leiðarlok
07-apríl-2025
Helgarferðir – leiðarlok

Sumarið 2024 var ekki beint útilegusumar, grenjandi rigning flesta daga og tjaldsvæðin á floti.  Þegar ég skipulegg útilegur, þá fer ég ekki af stað nema ég fái sæmilega þurrt veður í 3-4 daga.  Miða við að ég sé á bíl og geti elt góða veðrið með...

Opið hús - Dekkjaskipti
05-apríl-2025
Opið hús - Dekkjaskipti

Opið hús á Sævarhöfða 31, mánudaginn 7. apríl 2025 frá kl. 18:00 til 21:00.  Þar verður sýnikennsla, hvernig eigi að skipta um dekk á reiðhjóli.  Öll verkfæri til staðar.  Fólk getur prófað að skipta sjálft og fengið aðstoð hjá reynsluboltum...

Hjólhesturinn 2025 kominn út
05-apríl-2025
Hjólhesturinn 2025 kominn út

Nú ættu allir virkir félagsmenn Fjallahjólaklúbbsins að hafa fengið tímaritið okkar Hjólhestinn inn um bréfalúguna ásamt félagsskírteini 2025 ef félagsgjaldið hefur verið borgað.

Aðalfundur Íslenska fjallahjólaklúbbsins 29. apríl 2025
05-apríl-2025
Aðalfundur Íslenska fjallahjólaklúbbsins 29. apríl 2025

Aðalfundur Íslenska fjallahjólaklúbbsins verður haldinn þriðjudaginn 29. apríl 2025 kl. 20 í klúbbhúsinu Sævarhöfða 31.

Viltu skrifa í árlega tímaritið okkar, Hjólhestinn?
19-Jan-2025
Viltu skrifa í árlega tímaritið okkar, Hjólhestinn?

Venju samkvæmt hefst vinna við árlega tímaritið okkar Hjólhestinn núna í upphafi árs og auglýsum við hér með eftir efni. Það er laust pláss fyrir ýmisskonar pistla, ferðasögur, reynslusögur úr starfi klúbbsins og allskonar. Við látum samt aðra að...

6.-7. júlí – Siglufjarðarskarð og Kolugljúfur - helgarferð
23-jún-2024
6.-7. júlí – Siglufjarðarskarð og Kolugljúfur - helgarferð

Helgina 6.-7. júlí förum við í helgarferð um Siglufjarðarskarð og Kolugljúfur.

Hjólreiðalandslið ÍSÍ

Hjólablogg
  • Fjallahjólakeppnin á Smáþjóðaleikunum verður haldin föstudaginn 3. júní en götuhjólreiðarnar fara fram 31. maí og TT 2. júní. Þær kepnnir eru nokkuð svipaðar því sem við eigum að venjast en hinsvegar má segja að fjallahjólakeppnin verði ný raun fyrir okkar fólk.

    xco_lie_2011.jpg

    Meðfylgjandi mynd er hæðarprófíll af brautinni (hægt að smella á tvisvar til að sjá stærri). Hún er 5km að lengd og er að mestu skógarstígar í Schellenberg. Hjólaðir verða 6 hringir, samtals 30 km sem er auðvitað ekki löng vegalengd. Þetta hljómar því eins og þægilegar föstudagsfjallahjólreiðar í fallegu umhverfi. Þegar hæðarprófíllinn er skoðaður nánar kemur í ljós að hækkun í hverjum hring er 282m og samtals hækkun því næstum 1700m. Til samanburðar þá er heildarhækkun í Öskjuhlíðar- og Rauðavatnskeppnunum um 350-400m og þykir mörgun nóg um. Það er því ekki víst að íslensku keppendurnir nái að njóta fegurðarinnar á leiðinni mikið með púlsinn í botni í 25-30stiga hita í 2 tíma. 13 konur og 28 karlar eru skráðir í forskráningu í keppnina. Brautin var vígð síðasta sumar þegar meistarmót Liechtenstein í fjallahjólreiðum fór þar fram. Meðfylgjandi er kort, úrslit og myndir frá þeirri keppni. Þar má m.a. sjá menn leiða hjólið niður brekku en það hefur hingað til ekki verið talið bæta tímann mikið að labba með hjól niður brekkur. Það er sennilega einhver góð ástæða fyrir því sem gæti verið drulla. 

  • Fyrir veturinn í ákvað ég í fyrsta skipti að skrifa niður æfingaplan. Það sem rak mig helst af stað í þetta var einfaldlega sú staðreynd að í vetur hef ég ekki alveg sama tíma aflögu og áður á kvöldin vegna breyttra aðstæðna heimafyrir og því var bara eitt í stöðunni. Aðlagast! Ég fjárfesti í powermæli í haust sem ég ákvað að ég yrði að nýta sem allra best við æfingarnar. Án þess að fara ítarlega í æfingaplanið sjálf að þá er ég í fyrsta skipti farinn að gera interval æfingar að vetri til og þar spilar áður nefndur powermælir stórt hlutverk.

    SRM Á bakvið svona æfingar eru býsna flókin fræði og er hægt ýmsan fróðleik á netinu ásamt þónokkru magni af bókum sem hægt að er að nálgast með einföldum hætt í gegnum netið. Eftir að hafa ráðfært mig við fróða einstaklinga og farið í gegnum mikið efni á netinu að þá barði ég saman prógramm og mig langar til þess að deila einni svona æfingu með ykkur. Þetta er æfinga sem ég hjóla inni á trainer og styðst nær einöngu við power. Þetta er dæmigerð svona interval æfing eins og ég nefni hér að ofan. Markmiðið með æfingu sem þessari er að hækka mjólkursýruþröskuldinn en til þess að gera það er hjólað sem næst þröskuldinum í ákveðið langan tíma, svo slakað á. Sú æfing sem ég deili með ykkur hér hefur ákveðna uppskrift sem hljómar svona: 3x(8 LT + 4 50%). Fyrir þá sem ekki skilja þetta þá þýðir þetta þrjú intervöl á þröskuldi með fjögurra mínútna millibili þar sem hjólað er á 50% álagi af þröskuldi til þess að jafna sig. Þetta þýðir að líkmaninn er þarna að fá 24 mínútur af álagi sem er mjög nálægt mjólkursýruþröskuldinum.

     

    Til þess að þessar æfingar skili tilsettum árangri er mjög mikilvægt að taka próf með ákveðnu millibili til þess að sjá hvort að þér sé að fara fram eða aftur. Ef allt gengur að óskum og þér fer fram. Nú þá er nauðsynlegt að breyta intervölunum og hækka álagið sem nemur bætingunni. Svona próf ætti að framkvæma á 4-5 vikna fresti og þá helst í lok rólegrar viku.

    powertap_sl_computer_and_hub.jpgMeð því að smella á linkinn hér fyrir neðan getði þið auðveldlega skoðað æfinguna. Hún byrjar á stighækkandi upphitun sem er alltaf eins, eða 15 mínútur. Síðan fer ég beint í intervölin og ættu þau að sjást býsna vel á línuritinu. Ef þetta er skoðað nokkuð grant má glögglega sjá að púlsínn er nokkuð hærri í seinasta intervalinu heldur en því fyrsta en þó er “power outputtið” (krafturinn sem fer í pedalana) svo til sá sami.

     

    Ef það vakna einhverjar spurningar í kringum þetta að þá vil ég endilega hvetja ykkur til þess að varpa þeim fram í athugasemdum hér að neðan.

    Æfinguna má nálgast með því að smella hér.

     

    Pétur Þór Ragnarsson

  • samfelagssjodur.jpgLandsliðshópurinn fékk nýverið styrk úr Samfélagssjóði Landsvirkjunar að upphæð 100.000. Grunnstoð samfélagssjóðsins er efnahagsleg, umhverfisleg og félagsleg sjálfbærni og hjólreiðar falla mjög vel undir þessa skilgreiningu. Hjólreiðanefnd ÍSÍ þakkar Landsvirkjun kærlega fyrir. Nú er verið að vinna í öðrum styrkjamálum og vonandi verður nýr styrktarsamningur kynntur í lok mánaðarins. Fylgist með hér.
  • Æfingar um jólin hafa gengið ágætlega. Veðrið fór að verða til leiðinda þannig að útiæfingar breyttust nokkuð. Það er mjög erfitt að hjóla lengi þegar það er hríð eða púðursnjór vegna þess að snjór fer í tannhjólin og það verður erfitt að halda keðjunni á tannhjólunum í átaki.

    25des.jpg

    Fyrir digga lesendur síðunnar sem staddir eru erlendis koma tvær myndir með þessari stuttu færslu. Annars vegar er það mynd frá æfingu í gær (jóladag) sem tekin var í Heiðmörk en þá var kominn sæmilegur snjór. Hin myndin var svo tekin á æfingu í dag. Þá var allur snjór farinn og standard rok og rigning í borg bleytunnar. Ef meðfylgjandi mynd prentast vel má sjá að helsta veðurathugunartækið á Reykjavíkurflugvelli er lárétt í rokinu.

    26des.jpg

    Meðalhraði á æfingunni eftir 60 mínútur var 28,5km/klst á fjallahjólum. Ekki fæst uppgefið hver meðalhraðinn var þegar búið var að hjóla í mótvindi líka

  • heidmork.jpgHjóla.blog.is óskar lesendum gleðilegra hjólajóla. Einhverjir hafa fengið eitthvað fallegt hjóladót í skóinn og aðrir fá í kvöld. Sjáumst á hjólinu. Meðfylgjandi mynd var tekin á æfingu í morgun í Heiðmörk þegar máninn var að hverfa í hríðina.