Lilja Eyþórsdóttir er enginn nýgræðingur í Fjallahjólaklúbbnum.  Hún er búin að vera félagi síðan 2012.  Árið 2025 ákvað hún að verða mætingameistari kvöldferðanna.  Og það tókst.  Mætti í 13 ferðir af 17.  Maðurinn hennar, Einar missti af einni ferð, mætti 12 sinnum.  Annars hefðu þau deilt fyrsta sæti.

Við höfum hjólað hingað og þangað, aðallega þangað.  Okkur var boðið heim til Lilju og Einars eitt kvöldið og heim til Önnu og Munda annað kvöld.  Við erum ákaflega þakklát fyrir það.

Það er svolítil yfirsjón hjá umsjónaraðila kvöldferðanna að hafa ekki birt mynd af mætingameistara í Hjólhestinum síðustu ár og viljum við bæta úr því og gera betur hér eftir.

Fyrir neðan eru svo svipmyndir frá ferðunum 2025.

Kvöldferðanefnd hefur lagst yfir og skipulagt ferðir sumarsins.  Til að auka fjölbreytni verður breytilegur brottfararstaður.  Best er að kíkja á Facebook viðburðinn, þar kemur brottfararstaðurinn fram.  Við ætlum að fara frá Hemmi í maí, Garðabæ í júní, Mjódd í júlí og svo nýr brottfararstaður sérhvern þriðjudag í ágúst.  Hér fyrir neðan má finna dagskrá með brottfararstað.

Brottför er alla þriðjudaga í sumar kl 19:00

 

Dagsetning  Brottför Leið / lýsing
5. maí Hlemmur Hjólað vestur í bæ að gamla Klúbbhúsinu og þaðan að Sævarhöfða 31 þar sem við fáum okkur kaffi og kökur.
12. maí Hlemmur Seltjarnarnes. Hjólum meðfram ströndinni, að Gróttu og austur Fossvogsdal. Hálfur Reykjavíkurhringur. Fótabað? Já, taktu með handklæði.
19. maí Hlemmur Við höldum áfram að kanna Vesturbæinn, Mundi kann margar sögur frá æsku sinni og deilir þeim með okkur.
26. maí Hlemmur Öskjuhlíð og Kársnes.
2. júní Garðatorg Við munum skoða Garðabæ, reyna að finna nýlega stíga sem fólk hefur ekki áður hjólað.
9. júní Garðatorg Álftanes og Garðaholt. Með viðkomu í Garðakirkjugarði.
16. júní Garðatorg Heiðmörk – Vífilstaðahlíð.
23. júní Garðatorg Hafnarfjörður – Taka eitt.
30. júní Garðatorg Hafnarfjörður – Taka tvö. Hafnarfjörður er stór bær.
7. júlí Mjódd Umhverfis Elliðavatn.
14. júlí Mjódd Heiðmörk – Rauðhólar.
21. júlí Mjódd Breiðholt – hverfið og skógarstígar umhverfis Breiðholt.
28. júlí Mjódd Árbær og Elliðaárdalur.
4. ágúst Mjódd Laugardalur – Háaleiti og Fossvogur.
11. ágúst Kjarni Mosfellsbæ Hjólum þvers og kruss um Mosfellsbæ.
Ath: Brottför frá Kjarnanum í Mosfellsbæ.
18. ágúst Olís Norðlingaholti Hjólað um Hólmsheiðina.
25. ágúst Sævarhöfði 31 Stuttur hjólatúr um Grafarvog áður en við krýnum Mætingameistara 2026 með pompi og prakt.

 

Svipmyndir frá ferðunum 2025

 

Samkvæmt hefð var vöfflukaffi efitir fyrsta hjólatúrinn, sem var um neðri hluta Grafarvogs.

Þriðjudaginn 13. maí voru skógarstígar Breiðholtsins hjólaðir.

20. maí var hjólað í gegn um Sólheima yfir á Laugarnes.  Skoðuðum breytingar hjá Hrafnlaugi Gunnlaugssyni í leiðinni.  Enduðum svo niðri í miðbæ á Kaffibrennslunni.

27. maí var hjólað frá Sævarhöfða yfir í gamla hluta Kópavogs.  Hjólatúrinn endaði svo á Micro Bar.

17. júní var hátíðarhjól niður í miðbæ Reykjavíkur.

1. júli buðu Anna og Mundi til kaffisamsætis á heimili sínu.  En fyrst leiddi Mundi okkur um smáíbúðahverfið og Vogana.

Elliðavatn í smá rigningu.  Enginn er verri þótt hann vökni.  9. júlí.

22. júlí var farið í golfskálann í Grafarvogi.  Með viðkomu í kajak-aðstöðunni.

29. júlí var hjólað yfir í Rauðhóla, eftir túrinn var komið við í Olís Norðlingaholti, sumir fengu sér borgara, aðrir samloku.  Enn aðrir ís.

5. ágúst var hjólað yfir í Hörðukór þar sem Lilja og Einar höfðu útbúið glæsilegt kaffihlaðborð.

12. ágúst var förinni heitið yfir í nýrri byggðir Kópavogs.  Hápunkturinn við útsýnisskífu á Smalaholti.

Síðasta kvöldferðin 2025 var 26. ágúst.  Við hjóluðum um Vogahverfi, bara til að eiga inni fyrir kaloríunum sem voru innbyrtar síðar um kvöldið.

Og það var Litlja Eyþórsdóttir sem var mætingameistari 2025.  Hún mætti í 13 af 17 ferðum sumarsins.

Birtist fyrst í Hjólhestinum, mars 2026