Snorri, Pétur, Jón Tryggvi og Svala á fyrstu myndinni.
Síðan koma Palli og Kalli "scott"
og Maggi rekur síðan lestina á fullbúnu hjólinu, undir allt búinn.
Jón Tryggvi, Svala, Snorri með myndavélina framaná sér, Pétur og Palli spjalla saman í einni af ófáum pásum á leiðinni.
Veturinn á undan hafði verið snjóþungur og enn nokkur snjór í fjöllunum þó komið væri fram í september.
Oft er best að leiða bara hjólið upp bröttustu brekkurnar.
Hér nálgumst við Krakatind.
Seinni nóttina gistum við hér í Dalakofanum.
Lagt af stað á sunnudeginum niður að Hellu eftir vel heppnaða ferð, leiðin er skemmtileg og flestar brekkurnar halla niður í móti.
Allar myndir © Guðrún Ólafsdóttir, texti Páll Guðjónsson.