Fyrirkomulag:
Laugardagur: Berserkjahraun
Lagt af stað hjólandi frá Stykkishólmi kl. 10. Hjólaður Helgafellsveitarvegur áleiðis í Bjarnarhöfn. Hákarlasafnið skoðað og nestishlé. Þaðan hjólað í Hraunsfjörð og um Berserkjahraun og nestishlé. Þaðan hjólað um Stykkishólmsveg heim í bækistöðvar. Vegalengd: 60 km.
Um kvöldið verður farið út að borða á Stykkishólmi.
Sunnudagur: Rauðhálshraun
Lagt af stað akandi með allt okkar hafurtask kl. 10 og ökum 65 km leið austur í Rauðhálsahraun. Hjólum suður um Rauðháls og norður með Haffjarðará og nestishlé við Rauðamelsölkeldu. Þaðan hjólað um Gerðuberg og til baka að bílum. Vegalengd 35 km. Komið við á einhverri vegasjoppu og snæddur hamborgari samkvæmt hefðinni eftir vel heppnaða hjólaferð.
Skráning og nánari upplýsingar hjá Örlygi Sigurjónssyni:
Sjá einnig viðburð á Facebook