- Details
- Hrönn Harðardóttir
26 -27 júlí - Hólaskógur - Þjórsárdalur
Hjólaferðin hefst á Sandártungu í Þjórsárdal, laugardaginn 26 júlí kl 12:00. Hjólað um línuveg og skógarslóða. Ca 30 km. Erfiðleikastig 5 af 10. Um kvöldið er sameiginleg máltíð og kvöldvaka, gist í Hólaskógi í svefnpokaplássi. Takið sundföt með, aldrei að vita nema Þjórsárlaug verði mátuð.
Á sunnudag verður hjóluð 25 km dagleið, hjólað frá Hólaskógi, Gjáin skoðuð og hjólað í kring Skeljafell aftur að Hólaskógi. Erfiðleikastig 5 af 10. Komið við á einhverri hamborgarabúllu á leiðinni í bæinn þar sem menn kveðjast með virktum og tárum.
Bókanir sendist á email