Skoðið vefinn þeirra hér: bjartur.org
- Details
Hjólreiðafélagið Bjartur kynnt á fimmtudagskvöld
Alltaf er gaman að fá gesti í heimsókn á baðstofuloftið okkar í
klúbbhúsinu. Góð mæting var sl. fimmtudagsvköld þegar Stefán Sverrisson
sagði ferðasögu að norðan. Við höldum uppteknum hætti og nk.
fimmtudagskvöld er komið að kátum köppum frá einu nýjasta
hjólreiðafélagi landsins, nefnilega Hjólreiðafélaginu Bjarti. Fulltrúar
félagsins munu kynna félagið og drekka með okkur kaffi og spjalla.
Bjartur samanstendur af félögum sem hafa það sameiginlegt að stunda
heilbrigða hreyfingu. Þær íþróttagreinar sem eru efst á bugi eru
hjólreiðar, hlaup og sund.
-Húsið opnar kl. 20. Að venju er viðgerðaraðstaðan opin á neðri hæðinni. Verið velkomin á Brekkustíg 2.