Laugardagur
Hjólaður hringur Sandgerði, Reykjanesbær, Garður, Sandgerði, tæpir 45 km. allt á malbikuðum vegum.
Áætlaður tími ca. 4 klst. Farið í sund í Sandgerði ef tími gefst til.
Ekið til Grindavíkur þar sem gist verður á tjaldsvæðinu. Farið út að borða um kvöldið. Gott þjónustuhús er á tjaldsvæðinu, sturtur og aðstaða til að matast.
Sunnudagur
Hjólaður malarvegur um Eldvörp út í Reykanesvita, þaðan farið að Gunnuhver og Suðurstrandarveg aftur til Grindavíkur. Tæpir 40 km.
Malarvegurinn er nokkuð laus í sér á kafla en mjög skemmtileg hjólaleið.
Áætlaður tími u.þ.b. 4 klst.
Hjólaleiðir helgarinnar eru að mestu nokkuð viðráðanlegar, lítið um brekkur. Fararstjórar eru Auður Jóhannsdóttir og Björn Bjarnason. Kostnaður er 2.000 kr. fyrir bílfar og gisting á tjaldsvæði.
Þeir sem hyggjast fara í þessa ferð, skrái sig með að senda tölvupóst á