2. Skipun tengiliðs hjólarráðs
Nauðsynlegt er að hafa tengilið sem ber ábyrgð á að vinna eftir tillögum hjólaráðsins
3. Könnun meðal starfsmanna
Gott er að kanna áhuga starfsmanna á hjólreiðum og leita e.t..v. að ástæðum þess að þeir kjósi bíl umfram hjól.
4. Hjólreiðakort
Gott
er prenta kort sem sýnir helstu hjólreiðaleiðir í nágrenni
vinnustaðarins. Ekki er verra ef upplýsingar um ferðir almenningsvagna
eru á sama korti ef starfsmenn vilja sameina hjólreiðar og notkun
almenningsvagna.
5. Bæklingur um hjólreiðar
Bæklingurinn ætti að innihalda upplýsingar frá hjólaráði, samgöngustefnu, mynd af aðstöðu hjólreiðafólks o.s.frv.
6. Hvati til hjólreiða
Hvettu
til hjólreiða með veggspjöldum, fréttum um hjólreiðar, fræðslufundum
o.fl. þ.h.. Útvegaðu lesefni fyrir starfsmenn sem hvetur til hjólreiða.
7. Fréttatilkynningar
Kynntu hvað vinnustaðurinn er að gera í hjólreiðumálum. Bjóddu fjölmiðlum í heimsókn.
8. Hjólreiðastæði
Bjóddu
starfsmönnum upp á hentug hjólreiðastæði. Hafðu þau helst yfirbyggð og
þannig að tryggt sé að hjólum verði ekki stolið þó svo að þau séu skilin
eftir yfir nótt. Huga þarf einnig að lýsingu.
Hugsaðu einnig um stæði fyrir viðskiptavini. Hafðu stæðin þannig að ekki sé hætta að gjarðir beyglist í vindi og reyndu að hafa þau eins nærri inngöngum og hægt er.
Fækkaðu e.t.v. bílastæðum til að fjölga hjólreiðastæðum og hugsaðu um nýtingu fyrir það pláss sem gæti sparast með færri lögðum bílum. Ókeypis bílastæði letja til hjólreiða.
9. Flutningar
Ef fyrirtækið er að flytja er mikilvægt að horfa til möguleika hjólreiða við val á nýrri staðsetningu.
10. Sturtur og skápar
Skilgreindu
þörfina fyrir skápa og sturtur. Er núverandi aðstaða nægilega góð, vita
starfsmenn af henni? Henta skáparnir fyrir jakkaföt og kjóla? Eru
sturtur fyrir bæði kyn?
11. Fjárhagslegir hvatar
Reiknaðu
út virði hvers bílastæðis og bjóddu starfsmönnum andvirði þess ef þeir
kjósa að nýta það ekki. Í því gæti t.d. falist að starfsmaður fengi
andvirði Græna kortsins, styrk til hjólreiðakaupa eða. styttri
vinnutíma. Gefðu starfsmönnum val um samgöngumáta. Bjóddu starfsmönnum
að nota íþróttastyrk til kaupa á hjóli og hjólreiðabúnaði.
12. Aðstaða til viðgerða
Finndu út hvar næsta viðgerðaverkstæði er eða skipulegðu ákveðið svæði til viðgerða.
13. Kennsla um hjólreiðar
Haltu
reglulega fundi og/eða fræðsluerindi um hjólreiðar. Kenndu fólki að
velja bestu leiðirnir, um samgönguhjólreiðar, hvernig fatnaði eigi að
klæðast, hvernig koma megi í veg fyrir þjófnað, um samnýtingu hjóla og
almenningsvagna, um heilsufarslegan ávinning þess að hjóla, um
hjólaferðir o.s.frv.
14. Taktu þátt í Hjólað í vinnuna
Hvettu starsfmenn til að taka þátt í hjólað í vinnuna sem fer fram í maí á hverju ári.
15. Varnaglar
Bjóddu hjólreiðamönumm að fá lánsbíl eða taka leigubíl í neyðartilvikum.
16. Viðurkenning til starfsmanna
Veittu
framúrskarandi starfmönnum, viðskiptavinum, nemendum o.s.frv. hjól í
verðlaun eða annað sem tengist hjólreiðum. Gefðu endurskinsvesti, ljós,
spegla eða hjálma sem e.t.v. er merkt vinnustaðnum og starfsmanninum.
Sýndu fólkinu að þér þyki vænt um það og að þú berð öryggi þess fyrir
brjósti.
17. Kveddu mýturnar niður
Fólk
segist gjarnan ekki hjóla „af því það er of langt, ég þarf að skutla
barninu mínu, ég er í of lélegu formi, of mikil rigning, of mikill
vindur, of bratt, of hættulegt, ég vil ekki skipta um föt, það tekur of
langan tíma”. Stundum eru þetta alvöru orsakir en stundum eru þetta
ímyndaðar hindranir í huga fólks sem eiga ekki við.
18. Hjólafloti
Bjóddu upp á hjólabanka á líkan hátt og mörg fyrirtæki reka bílabanka.
19. Hjólaleiga
Lánaðu
hjól í ákveðinn tíma t.d. frá 30 til 90 daga. Þannig gefst fólki kostir
á að prófa hjólreiðar án þess að kaupa sér hjól. E.t.v. mætti bjóða
fólki að kaupa hjól í kjölfar leigu.
20. Skipulegðu hjólaferðir
Styrktu hjólaferðir í hádeginu eða fyrir/eftir vinnu. Slíkar hjólreiðaferðir efla starfsandann og eru góður hvati til hjólreiða.