Stundum, einkum á sumrin, fer ég víðar um landið til að svala ferðafýsn minni og hjólaáráttu. Þá er ég oftast að safna efni í Hjólabækurnar mínar. Í fyrra var ég í Árnessýslu en nú er ég kominn á mínar fornu slóðir, Rangárvallasýslu. Ó, hve það er gaman að upplifa þetta svæði upp á nýtt. Sami maður og sami staður en hvort tveggja hefur breyst einhver ósköp. Og svo þessi breyting á hraða, sjónarhornum og upplifun sem fylgir því að nota reiðhjól sem farartæki. Ég var ósvikinn túristi í minni gömlu heimabyggð og naut þess. Ég fór á marga staði sem ég hafði aldrei komið á áður af því ég hafði aldrei átt beint erindi þangað. Túristinn þvælist um í unaðslegu erindisleysi.
Það er svo sannarlega hægt að njóta þess að þvælast um á hjóli í þessari sýslu. Ólíkt nágrannasýslunni í vestri, er víðast hvar pláss á vegum Rangárvallasýslu fyrir hjólreiðafólk. Bílaumferðin er hvergi verulega þung nema á þjóðvegi nr. 1, margir fáfarnir sveitavegir, ýmist með malbiki eða möl, og sumstaðar hagar svo til að hægt er að hjóla tímunum saman án þess að lenda í einni einustu brekku. Afréttir sýslunnar eru alger draumur. Þá á ég ekki við að allar leiðir þar séu greiðfarnar. Sumstaðar er laus sandur og víða er yfir ár að fara og á helstu leiðum til Landmannalauga er óþægilega mikil og rykmenguð bílaumferð. En þetta er bara svo óborganlega fallegt, þið afsakið hlutdrægnina.
Það má finna slatta af hjólanlegum slóðum í Rangárvallasýslu sem ekki eru bílvegir, eins og til dæmis Laugavegurinn sem er göngustígur Það er mjög mikil hestamennska iðkuð í sýslunni og sumar reiðleiðir eru ákjósanlegar hjólaleiðir ef ítrustu tillitssemi er gætt.
Það er vonandi bara tímaspursmál hvenær góður hjólastígur kemur meðfram þjóðvegi nr. 1 og sýslan öll verði þar með orðin góð hjólasýsla. Því trúi ég vegna þess að Ísland vill vera hluti af EuroVelo kerfinu. Búið er að velja leiðina og hún liggur m.a. í gegnum Rangárvallasýslu, eftir nefndum þjóðvegi. Umferðarþunginn á honum er hinsvegar meiri en staðlar leyfa. Sem sagt, hjólastíg í gegnum Rangárvallasýslu eða ekkert EuroVelo. Sveitarstjórinn í Rangárþingi eystra, Ísólfur Gylfi, er forfallinn hjólreiðaáhugamaður (er t.d. aðal hvatamaður að Tour de Hvolsvöllur). Hann er búinn að æsa aðra sveitarstjóra til að fara að gera eitthvað í málunum.
Það má sem sagt mæla með Rangárvallasýslu fyrir fólk sem hefur nautn af því að ferðast um á reiðhjóli og það á trúlega bara eftir að batna.
Höfundur ásamt ferðamönnum frá Frakklandi og Póllandi. Fjallaþyrpingin að baki heitir Norðurnámur.
Hjólhesturinn 25. árg. 1. tbl. mars. 2016