8. maí heimsóttum við Breiðholt.
15. maí var hjólað um Langholt og Sundahverfi og endað í kaffi í Meskí Faxafeni
29. maí var hjólað um Elliðaárdal og endað í Café Flóran
5. júní. Þingholt, vesturbær og endað í ísbúð
12. júní var farið í Vogahverfi og Elliðaárdal
19. júní. Það rigndi svolítið á okkur, svo við fórum á Gamla kaffihúsið Breiðholti
10. júlí var bongóblíða. Hjóluðum í Hafnarfjörðinn og fengum okkur kaffisopa
17. júlí var bongóblíða. Hjóluðum í Hafnarfjörðinn og fengum okkur kaffisopa
24. júlí fóru nokkur prósent þjóðarinnar á Gun's n Roses. Aðrir hjóluðu upp í Grafarvog
7. ágúst hjóluðum við niður í Elliðaárdal og enduðum, eins og svo oft áður á Café Meskí
21. ágúst hjóluðum við í Kópavog og þaðan yfir á Arnarnesið. Á leiðinni heim bauð Svanur okkur óvænt heim í kaffi og kruðerí.
28. ágúst
Lokahófið var svo haldið með pompt og prakt í Mosfellsbæ. Geir Harðarson tók á móti okkur með vöfflukaffi, heitu súkkulaði, kökum og kræsingum. Mætingameistarinn árið 2018 var Hrönn, alls 14 skipti, en fast á hæla hennar komu Svanur og Tryggi með 9 skipti.
Myndband:
Myndir og myndband: Hrönn Harðardóttir
Myndirnar eru líka hér í myndaalbúmi: Þriðjudagskvöldferðir ÍFHK 2018