Hjóladagurinn í Laugardalnum 19 júní var samstarfsverkefni Íþróttabandalags Reykjavíkur og ÍFHK vegna Íþróttaviku í Reykjavík, Menningarborg 2000.
Farnar voru hjólaferðir um Laugardalinn og upp í Elliðárdal. Hjólaþrautir voru á planinu fyrir framan ÍSÍ húsið og einning var boðið upp á tískusýningu á hjólafatanaði frá Nanoq, Erninum og ME Co-op. Á hjólaleiðinni voru stimpilstöðvar og fengu þáttakendur verðlaun: Sprite frá Vifilfelli, hjólahjálma og húfur. Hjóladagurinn tókst vel þrátt fyrir rigningu og sérstök ánægja að hafa Árna Þór borgarfulltrúa með í hjólahringnum til að kynna sér aðstæðurnar. AJ
Þessa svipmynd frá hjóladeginum sendi Hjördis hjólagarpur heimasíðunni.