Fyrstu 3 karlar og fyrstu 3 konu fá veglega verðlaunapeninga en auk þess fá allir þátttakendur orkudrykk á leiðinni, orkubita eftir hjólið, grill og frítt í sund. Þátttökugjald er 2000 kr.
STAÐUR: Þingeyri við Dýrafjörð
TEGUND KEPPNI: Fjallahjólreiðar-hópstart, 55 km / 1080 m heildarhækkun.
SKRÁNING: Netskráning fer fram á www.hlaup.com [1] - fyrir kl. 12:00 þann 14. júlí.
SKRÁNINGARGJALD: Keppnisgjald er 2000 kr. á mann í netskráningu. Innifalið í skráningargjaldi er aðgangur að sundlaug, heitum potti og gufu í Sundlaug Þingeyrar eftir keppni.
EFTIRSKRÁNING: Hægt er að skrá sig á keppnisstað á milli 9:00 og 10:00 en athugið að skráningargjald í eftirskráningu er 4000kr.
FLOKKAR: Opinn flokkur karla og kvenna.
RÁSMARK OG ENDAMARK: Start/Mark er við Sundlaug Þingeyrar (framan við kirkjuna á Þingeyri)
TÍMI: Ræst verður kl. 10:00 - 16. júlí (07) 2011
INNRITUN/AFHENDING RÁSNÚMERA: Við Sundlaug Þingeyrar. Innritun/afhending opnar klukkan 9:00, klukkutíma fyrir start. Númer staðsetjist á vinstri öxl og á stýri reiðhjóls.
LEIÐ: Sundlaug Þingeyrar - Þingeyrar Flugvöllur – Kirkjubólsdalur – Kvennaskarð(Kaldbakur) – Fossdalur – Sléttanes – Svalvogar – Sveinseyri – Haukadalur – Sundlaug Þingeyrar.
BÚNINGSAÐATAÐA: Búningsaðstaða og aðgangur að snyrtingum er í Sundlaug Þingeyrar. Bílastæði eru við Sundlaug Þingeyrar
DRYKKJARSTÖÐVAR: Ein drykkjarstöð verður á leiðinni ca. á hálfri leið. Einnig verður boðið upp á orkudrykki, vatn og eitthvað að bíta í á marksvæðinu.
ÖRYGGISMÁL: Björgunarsveit Þingeyrar er til staðar á Þingeyri í tilfelli óhappa. Öryggisbíll/”fægiskóflan” fer á eftir síðustu þáttakendum og aðstoðar þá sem þurfa. Keppendur eru á eigin ábyrgð í keppninni. Hjálmaskylda er í keppninni.
Allir velkomnir
Pálmar Kristmundsson
Nánari upplýsingar