Kæru
félagar. Þá er komið að formlegri lokaferð þriðjudagshjólreiðanna. Við
hittumst við Fjölskyldu- og húsdýragarðinn kl. 19 nk. þriðjudag og
hjólum saman yfir götuna yfir til GÁP sem býður okkur í glæsilega
grillveislu. Búðin verður opin og aldrei að vita nema einhver góð
tilboð séu í boði þetta kvöld. Allir sem hafa komið með í ferðir
sumarsins - sem og þeir sem alltaf ætluðu að koma og allir hinir líka,
eru hjartanlega velkomnir með okkur í veisluna.
Þriðjudagsbikarinn verður afhentur; í fyrra var það Edda - í ár verður
spennandi að sjá hvort það verður Hrönn eða Ásgeir eða einhver annar
sem hlýtur bikarinn. Alhliða flutningaþjónustan er gefandi hans
Hér eru nokkrar myndir sem Árni Davíðsson tók í þriðjudagsferð í sumar þegar hjólður var hringur um Kópavog.