Félagar í Íslenska fjallahjólaklúbbnum verða á vaktinni og hjóla á milli pósta og leiðbeina þátttakendum. Einnig verður Dr. Bæk í klúbbhúsi ÍFHK að Brekkustíg 2 og gefur út ástandsvottorð á heilbrigði hjólhesta og leiðbeinir um það sem betur má fara á hverju hjóli. Þetta er eini pósturinn í leiknum þar sem bæði er í boði stimpill og lykilnúmer.
Stimpill og lykilnúmer eru einmitt það sem þátttakendur eiga að safna á þátttökuseðilinn sinn. 5 af hvoru; þ.e. 5 lykilnúmer sem er að finna á póstunum við göngu- og hjólastígana við strönd Höfuðborgarsvæðisins og ná sér í 5 stimpla hjá þeim fyrirtækjum sem kynna starfsemi sína á Höfuðborgarsvæðinu á Ferðafagnaði. Á strandpóstunum er einnig leiðbeining um fyrirtæki í nágrenninu sem stimpla á þátttökuseðilinn. Það má líka safna 10 lykilnúmerum og sleppa stimplunum í fyrirtækjunum ef þið kjósið.
Allir póstarnir eru merktir með GPS-hnitum svo þeir sem eiga slíkar græjur geta farið með þær út að hjóla. Glæsilegir vinningar eru í boði sem gefnir eru af fyrirtækjunum sem taka þátt í Ferðafagnaði. Rétt útfylltum þátttökuseðlum má skila inn á alla þá staði sem stimpla í leiknum fyrir kl. 18 laugardaginn 18. apríl. Eftir það er hægt að skila seðlunum inn hjá Höfuðborgarstofu, Aðalstræti 2 til og með síðasta vetrardags, miðvikudaginn 22. apríl nk.
Dregið verður úr innsendum lausnum á Rás 2 á sumri komanda og listinn birtur á vefnum fjallahjolaklubburinn.is
Líklega er Hjólaratleikurinn á Ferðafagnaði stærsti ratleikur sinnar tegundar sem nokkurn tíma hefur verið boðið í á Íslandi. Hann spannar tæplega 50 km leið þó meðalþátttakandinn finni sér 5 pósta á innan við 10 km leið. Hver keppandi velur sjálfur þá 5 pósta sem hann notar til þess að skrá lykilnúmer á þátttökuseðilinn og velur einnig sjálfur þau 5 fyrirtæki sem hann heimsækir til þess að ná sér í stimpil á Ferðafagnaðinum.
Leikurinn ætti að henta öllum sem gaman hafa af leikjum á aldrinum 9 – 99 ára.
Nokkrir skemmtilegir vinningar munu rata til þátttakenda; Sjóstangveiði með Eldingu og eldun á aflanum í Humarskipinu – Reiðnámskeið fyrir 1 barn hjá Íshestum og flug fyrir 2 í innanlandsflugi Flugfélags Íslands. En stærsti vinningurinn verður ævinlega að vera og njóta þess að hjóla.
Allar nánari upplýsingar veitir Sesselja Traustadóttir varaformaður ÍFHK, höfundur og framkvæmdastýra ratleiksins, í síma 864 2776.
Sjá líka á vefnum www.ferdafagnadur.is