NÁNAR:
5. mars:
Öllu því besta skákað til á kaffihlaðborði. Og á sama tíma (eða þegar allir hafa fengið sér vel á diskana) verður myndasýning með yfirskriftinni "Hjólað á fjöllum". Reynsluboltinn Árni kemur með nokkrar ferðasögur af Íslenska hálendinu og deilir með okkur í máli og myndum. Viðgerðar aðstaðan opin að sjálfsögðu og gott að geta dittað að hjólinu í leiðinni.
8. mars:
Síðasti sunnudagshjóltúr leiddi okkur eftir sjávarsíðunni í Mosfellsbæ. En Guðný hafði fregnir af því að það væri svakalega gott kaffið í sundlauginni þar svo við ákváðum að rannsaka það nánar. Kaffið fengum við og kynningu á lauginni. Það var því ákveðið þar að við þyrftum að gera leiðangur í laugina með sundföt og prófa laugina og pottana. Hafið þvi sundföt með og smá klink.