- Details
- Vefstjóri
Þriðjudagskvöldferð - Vöfflukaffi 10. ágúst
10. ágúst verður lengri kvöldferð, þá hjólum við frá Mjódd upp í Mosfellsbæ í vöfflukaffi heima hjá Geir sem hefur tekið á móti okkur undanfarin ár með miklum myndarskap. Það verður myrkur á heimleiðinni og því mikilvægt að vera með ljós að framan og aftan og endurskin. Brottför frá Landsbankanum 19:30.