Dagskrá:
Við munum hittast við Olís, Norðlingabraut 7 kl 14, laugardaginn 27 júlí og hjóla saman um Heiðmörk. Hægt er að taka strætó nr 5 uppeftir, sjá nánar á vef strætó hvar hægt er að komast í hann. Við munum hjóla í 2-3 tíma, jafnvel kíkja upp á Geitháls, en þar ku óbyggðabakterían hafa smitað annan stofnanda klúbbsins. Vinsamlega fylgist með á Facebok viðburðinum, ef við þurfum að gera breytingar með litlum fyrirvara, þá verða þær tilkynntar þar. https://www.facebook.com/events/327066204914524/
Kl 18 hefst sameiginlegt borðhald og svo mun kvöldið líða við glaum og gleði. Gott að kippa með gítar ef menn eiga svoleiðis.
Fyrir þá sem koma beint í hátíðina er hér kort:
Myndirnar sýna mennina tvo sem stofuðu ÍFHK, Magnús Bergsson og Gísla Haraldsson, fyrir um það bil 30 árum.