Framundan er helgarferð um ægifagurt landssag. Lagt af stað laugardaginn 12 maí kl 11:00 frá Olís bensínstöðinni við Norðlingaholt. Hjólað verður eftir Suðurlandsvegi, beygt inn á veg nr. 431, Hafravatnsveg. Þaðan farin Nesjavallaleið upp með Henglinum, niður að Þingvallavatni og áfram til Úlfljótsvatns. Þar verður gist í góðum bústöðum með heitum potti. Leiðin er 50 km, að mestu á malbiki. Allar tegundir af reiðhjólum henta, nema racer.
Fólk þarf að hafa með sér nesti til tveggja daga og drykkjarföng. Bæði fyrir daginn, þar eð engir lækir eru á leiðinni og það sem menn vilja kneifa um kvöldið. Sameiginleg máltíð á laugardagskvöldi (innifalið í verði) og hafragrautur á sunnudagsmorgni. Taka þarf með rúmföt (lak, sængur og koddaver), tannbursta og sundföt. Trússbíll tekur farangur og aðrar pjönkur og möguleiki á að fá aðstoð upp Hengilinn ef brekkurnar taka um of í. Það er sjónvarp í bústöðunum og hægt að fylgjast með Eurovision keppninni sem verður á laugardagskvöldið.
Á sunnudag verður lagt af stað um hádegisbil og sama leið hjóluð til baka. Það er takmarkað gistirými, svo það þarf að bóka sig fyrirfram í ferðina. Sendið email á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og tiltakið fjölda þáttakenda. Verð er 7000 kr. fyrir fullorðna. Innifalið: gisting, kvöldverður, hafragrautur í morgunmat og trúss á dóti. Vinsamlega takið fram ef ferðalangur er á vegan fæði. Fararstjóri er Hrönn Harðardóttir, gsm: 823-9780 Erfiðleikastig 6 af 10. Áætluð ferðalengd 5-7 klst í austurátt, 4-6 í vestur.
Fólk er á eigin ábyrgð í ferðum Fjallahjólaklúbbsins.
Ferðanefnd.