Atburðaalmanak
| Mánudagur | Þriðjudagur | Miðvikudagur | Fimmtudagur | Föstudagur | Laugardagur | Sunnudagur | |
| 17 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 1 | 2 |
| 18 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
| 19 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
| 20 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
| 21 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
| 22 | 31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |

Á Sævarhöfða 31 er rúmgóð viðgerðar aðstaða og horn fyrir kaffi og spjall. Opið frá kl 18 til 21 alla mánudaga. Athugið að Reiðhjólabændur sem deila verkstæðinu með okkur gætu haft annan og meiri opnunartíma. Tíðni opnana getur þó verið breytilegur eftir árstíð og eftirspurn. Öll áhöld til viðgerða eru til staðar en ætlast er til þess að fólk geri við sjálft og gangi fallega um aðstöðuna.
Það verða líka haldin kompukvöld, myndasýningar, viðgerðanámskeið og ýmsar óvæntar uppákomur sem við kynnum á Facebook síðu klúbbsins eða á póstlistanum okkar.
Þriðjudagskvöldferðirnar - yfir sumarmánuðina
Í sumar verður breytilegur brottfararstaður. Best er að kíkja á Facebook viðburðinn, þar kemur brottfararstaðurinn fram. Við ætlum að fara frá Hemmi í maí, Garðabæ í júní, Mjódd í júlí og svo nýr brottfararstaður sérhvern þriðjudag í ágúst. Hér fyrir neðan má finna dagskrána, smellið á viðburð til að sjá brottfararstað og smá um leiðina.
Brottför er alla þriðjudaga í sumar kl 19:00
Sjá líka viðburði á Facebook: https://www.facebook.com/fjallahjolaklubburinn/events
Til viðbótar við viðburði sem eru planaðir langt fram í tímann eru stundum farnar dagsferðir og jafnvel helgarferðir sem skipulagðar eru með stuttum fyrirvara.
Endilega skráið ykkur á póstlistann okkar á forsíðunni og fylgist með á Facebook.



