Þessi listasmíði hér eru hjólastæði, og það engir gjarðabanar heldur gegna þau fullkomlega tilgangi sínum. Þau veita hjólinu góðan stuðning og hægt er að læsa stellið tryggilega með alvöru U-lás. Hjólamaðurinn heldur 5 hjólum - bókstaflega.
Það er Dero bike rack co sem framleiðir þessi hjólastæði og mörg fleiri hefðbundnari sem má skoða á vef þeirra ásamt fróðleik um hvað vikrar og hvað virkar ekki þegar hugað er að hönnun hjólastæða. Við þökkum Óla litla ábendinguna og minnum á úttektina á hjólastæðum sem er hér á vef klúbbsins.