|
|
Þetta er nýja klúbbhúsið okkar að Brekkustíg 2 á horni Framnesvegar. Myndirnar hér fyrir neðan voru teknar 24 júní 1999, um það bil 10 dögum eftir að við fluttum okkar hafurtask á efri hæðina. |
|
|
|
Að venju var hópurinn blandaður, karlar, konur, uppáklætt í hjólafatnað eða ekki, gamalreyndir hjólreiðamenn og nýliðar. |
|
|
|
Við eigum enn töluvert óunnið í því að koma okkur fyrir þarna og gera vistlegra. Heimir tók smá skurk í því að raða upp bókasafninu. Nú má segja að stóru hvítu skáparnir sem voru svo hentugir í gamla húsnæðinu séu orðnir til óþurftar og komin meiri þörf fyrir lægri skápa sem má koma fyrir alveg undir súðinni, þar sem geymsluplássið er best. |
|
|
|
Á neðri hæðinni verður viðgerðaraðstaðan og menn þegar byrjaðir að nota hana. Þar glittir líka í nýju standana sem nokkrar hjólreiðaverslanir leyfa okkur að koma fyrir til að kynna klúbbinn og starfsemi okkar til að efla notkun almennings á reiðhjólum. Annars var þetta nokkuð venjulegt kvöld í klúbbhúsinu. Vestfjarðaferðin sem farin var fyrir tvem vikum var rædd og allir mjög ánægðir með hana og spáð í Skorradalsferðina eftir viku. Benni sést hér segja Jón Erni einhverja ýkjusögu, Robbi og Jói spá í einhverja pappíra og Stebbi gluggar í nýjustu blöðin. |
|
|
|
Við enduðum svo kvöldið á því að endurraða húsgögnunum til að nýta plássið betur enda var varla pláss fyrir alla á tímabili, þetta fyrsta kvöld eftir flutningana. |
©ÍFHK 1999
Myndir og texti Páll Guðjónsson