París er með hjólavænustu borgum heims. Þar eru yfirvöld
ekkert hikandi við að gefa hjólum og almenningssamgöngum forgang í gatnakerfinu.
Ýmislegt er gert til að auðvelda fólki að hjóla um borgina, hjólabrautir, hjólareinar,
hjólavísar á götum, forgangsakreinar með almenningsvögnum og núna í sumar var ráðist
í stórkostlegt verkefni með 10 ára samningi um almennings leiguhjól sem kostar
lítið sem ekkert að nota. Ég var á ferð um París 2002 og tók þá þessar myndir
af aðstöðunni þar.
Til samanburðar fylgja með nokkrar nýjar myndir frá Reykjavík í
tilefni laga sem liggja fyrir alþingi um að banna hjólreiðafólki að nota
forgangsakreinar þvert á markmið ríkisstjórnarinnar um að skipulega verði unnið
að aukinni notkun vistvænna ökutækja.