- Details
- Hrönn Harðardóttir
Bikarhafi þriðjudagskvöldferðanna
Þá er þriðjudagskvöldferðunum okkar lokið að sinni. Það var Sigrún Lundquist sem vann mætingabikarinn, mætti í 15 af 17 ferðum sumarsins. Hákon J. Hákonarson gaf Fjallahjólaklúbbnum farandbikar sem vinningshafinn hampar ár hvert. Í september verður haldið myndakvöld með myndum úr þriðjudagsferðunum, fjölsóttust var Viðeyjaferðin okkar, 32 þátttakendur á öllum aldri, en flesta þriðjudaga mættu á bilinu 10-15 manns. Ekki var ákveðið fyrirfram hvert yrði hjólað, en veður, vindar og óskir þátttakenda réðu för hverju sinni. Við þökkum öllum sem hafa hjólað með okkur í sumar og vonumst til að sjá sem flest aftur næsta sumar.