Hjólaleið ræðst af veðri, færð, vindum og óskum þátttakenda. Gist verður í góðum bústað, gasgrill (fólk taki með eitthvað á grillið), heitur pottur (sundföt takk) og uppábúin rúm. Trússbíll tekur farangur. Hjólað til baka á sunnudeginum. Kostaður við trúss og gistingu er 2000 kr á mann. Frítt fyrir börn 0-12 ára. Upplýsingar og skráning hjá Hrönn í síma 823-9780 eða
- Details
- Hrönn Harðardóttir
Hjólaferð til Álftavatns 27. nóvember
Rétt áður en menn belgja sig út af smákökum og öðrum kræsingum tengdum aðventunni er upplagt að fara í smá hjólatúr út fyrir bæinn. Laugardaginn 27 nóvember verður hjólað til Álftavatns, sem er í 65-75 km fjarlægð frá Reykjavík. Eftir því hvort hjóluð er Nesjavallaleið eða í gegn um Mosfellsbæ, yfir heiðina og meðfram Þingvallavatni.