Önnur stefnumál, sem eru efst á lista LHM, eru hjólabrautir meðfram helstu umferðaræðum milli sveitarfélaga og hverfa á höfuðborgarsvæðinu. Einnig að hjólreiðafólki verði boðnar greiðar leiðir yfir gatnamót, en krókóttar leiðir og tvískipt ljós henta ekki hjólandi umferð. Ennfremur þarf að lagfæra stýribúnað við umferðarstýrð ljós, sem víða skynja illa eða ekki hjólandi umferð.

Fyrir hönd Stjórnar Landssamtaka hjólreiðamanna

Árni Davíðsson formaður  


Fréttatilkynning frá Landssamtökum hjólreiðamanna send 3. september 2010

Sjá Frétt um fyrirhugaðar breitingar á Suðurgötu