Einnig fór fram fyrsta keppnin í Skálafellsbruni og fleiri mót auglýst á
næstunni. Fylgist vel með á Skálafell Bike Park á Fésbókinni og
www.hjolandi.net . Þátttakendur á svæðinu voru gríðarlega hrifnir af
brautinni og ánægjan skein úr hverju andliti.
Jafnmörg dagskort í lyfturnar í Skálafelli hafa ekki verið seld á einum
degi í 18 mánuði. Dagskortið er á 2.000 kr. og stök ferð kostar 500 kr.
Það verður opið allar helgar út september kl. 12 – 17.
Íslenski fjallahjólaklúbburinn þakkar þeim Magne Kvam, Ormi Árnasyni,
Árna G. Guðmundssyni og David Robertson frábært framlag til íslenskrar
hjólamenningar og óskar um leið öllum hjólreiðamönnum landsins til
hamingju með þennan glæsilega hjólagarð.
Frábær hjólabraut við allra hæfi!
Skoðið myndirnar sem Sesselja Traustadóttir tók opnunardaginn.