Ályktun 228. fundar Umferðarráðs
228. fundur Umferðarráðs haldinn þann 29. október 2009 hvetur alla vegfarendur til að vera eins sýnilegir í umferðinni og kostur er í skammdeginu. Umferðarráð bendir á að endurskinsmerki gagnast mjög vel í þessu skyni. Þau eru ódýr og einföld í notkun. Umferðarráð áréttar að sérhver sem er á ferð í rökkri eða myrkri og ber endurskin sést margfalt betur og fyrr en sá sem er án þess. Foreldrar og forráðamenn barna eru hvattir til að sjá til þess að þau séu sýnileg á leið sinni í skólann á morgnana og einnig þegar þau eru á ferð síðdegis eða að kvöldlagi.
Umferðarráð
minnir einnig á reglugerð
um gerð og búnað reiðhjóla þar sem fram kemur að
reiðhjól skuli búin ljósi að framan og að
aftan auk glitmerkja, ef þau eru notuð
í myrkri eða skertu skyggni.
Umferðarráð
beinir þeim tilmælum til ökumanna að
aka ávallt eftir aðstæðum og huga sérstaklega að gangandi og hjólandi
vegfarendum í myrkri.
Umferðarráð hvetur jafnframt menntastofnanir barna og ungmenna, gangandi vegfarendur, reiðhjólamenn og hestamenn til að leggjast á eitt með Umferðarráði, Umferðarstofu og lögreglu til þess að koma þessum málum til betra horfs svo bæta megi umferðaröryggi allra vegfarenda.