Um kl. 24 verður lagt af stað í fjögurra tíma hjólaferðalag um Snæfellsnes. Höfum með okkur heitt kakó á brúsa og njótum kyrrðarinnar í landslaginu. Komið í búðir aftur árla morguns. Svefn og upp úr hádegi verður stóra grillveislan og svo meiri svefn. Leggjum svo í nýjan leiðangur upp úr kl. 22 á laugardeginum og hjólum út í nóttina. Heimkoma óviss.
Við getum verið á Grundarbóli fram eftir öllum degi á sunnudeginum.
Þátttökugjald í ferðinni er 1.000 kr. f. fullorðinn skuldlausan félagsmann og frítt fyrir börn undir 16 ára aldri í fylgd fullorðinna. Miðað er við 18 ára aldurstakmark ungmenna í ferðina. Fyrir aðra en félagsmenn kostar 3.000 kr. að koma með.
Það verður opið hús á Brekkustíg 2 fim. 26. júní kl 20:00 - 21:30 þar sem Fjölnir skoðar með þátttakendum nánari ferðaáætlanir og flutning á hjólunum. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku hjá Fjölni í síma 840 3399.
Ferðanefnd ÍFHK.
Hálsaból, Hálsi
Grundarfirði
Húsið er 45m² orlofshús. Góð aðstaða er til að tjalda skammt frá húsinu. Við húsið er skjólgóð verönd með heitum potti og gasgrilli. Hálsaból er 3 km frá Grundafirði við rætur Kirkjufellsins. Grundarfjörður er sérlega fagur fjörður, umlukinn fjöllum á þrjá vegu, sem eiga vart sinn líka að fjölbreytni, og er þar Kirkjufell mest áberandi. Grundarfjarðarbær er staðsettur í vinalegu umhverfi inni í firðinum og er þar mikil fiskvinnsla og útgerð. Í botni Grundarfjarðar á Grundarkampi er forn verslunarstaður og eru þar tóftir allt frá tímum dönsku einokunarverslunarinnar.