Það væri t.d. gaman að heyra frá einhverjum sem byrjaði nýlega að nota hjólið sem samgöngutæki og heyra hvað dreif viðkomandi af stað og hver reynslan hefur verið. Það má líka fjalla um ferð með klúbbnum eða aðrar skemmtielgar hjólaferðir.
Skilafrestur á efni er mánaðamóta en hægt að fá nokkra daga til viðbótar ef tilkynnt er um efni á leiðinni. Það væri gott að heyra sem fyrst frá þeim sem eru með efni í undirbúning. Hver síða rúmar 6-700 orð / 3200-3500 slög en minna með myndum. - Það er skemmtilegra að hafa myndir með. Ef textinn er mjög mikill getum við líka birt góðan kafla í blaðinu og síðan haft söguna alla á vef klúbbsins.
Einnig vantar okkur "auglýsingastjóra" eða aðstoð við að afla auglýsinga til að fjármagna blaðið og eru allar ábendingar og aðstoð vel þegin því eins og ávallt er allt starf unnið af sjálfboðaliðum hjá klúbbnum.
Sendið efni á netfang klúbbsins: