Síðasta kvöldferðin verður farin frá Húsdýragarðinum, aðalinngangi kl 19:30. Við munum hjóla upp í Mosfellsbæ, en þar ætlar höfðinginn Geir Harðarson að taka á móti okkur með vöfflukaffi og heitu súkkulaði. Muna eftir vatni, orkustykki og viðgerðasetti. Allt kvöldið mun fara í þessa síðustu kvöldferð, en við reynum að vera komin aftur til Reykjavíkur fyrir miðnætti.