Þetta er hjólaferð, svo takið hjólin með. Það verður hins vegar ekki ákveðið fyrr en á staðnum hvert verður hjólað, en dagleiðir verða léttar og stuttar. Fara eftir veðri, vindum og ásigkomulagi knapa. Gist er í góðum bústað í Brekkuskógi með heitum potti. Við munum elda og borða saman á laugardagskvöldinu. Í morgunmat á lau og sun er hafragrautur.
Ferðin kostar 7.000 krónur, innifalið er gisting, kvöldverður og hafragrautur tvo morgna. Við munum sameinast í bíla og keyra í bústaðinn á föstudaginn. Kostnaður per farþega og reiðhjól er 2000 krónur sem greiðist bílstjóra.
Bókun sendist á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it., takið fram hvort þið getið boðið far eða vantar far.
Þessi mynd er tekin á þessum slóðum í fyrra, það er aðeins minni snjór en búast má við einhverri vætu. Aðallega í heita pottinum.
-Ferðanefnd