- Details
- Ferðanefnd
Helgarferð 14.-16. ágúst. Vestmannaeyjar
Takið frá helgina 14-16 ágúst. Þá ætlum við að herja á Vestmannaeyjar.
Förum með hjól og farangur til eyja á föstudagskveldi og hjólum um eyjuna laugardag og sunnudag. Til baka með síðustu ferð Herjólfs. Gist verður í tjaldi og farið út að borða á laugardagskvöldið. Annars er fólk á eigin vegum, en um að gera að sameinast í bíla eftir því sem hægt er.
Plan B. Þar eð það getur gustað heldur betur í Vestmannaeyjum, þá munum við vinda kvæði okkar í kross og fara vestur í Laugar, Sælingsdölum og hjóla þar ef veður leyfir ekki hjólaferðir á suðlægum slóðum.
Við munum hóa í undirbúnings og samstöðufund þegar nær dregur.
-Ferðanefnd
PS: myndin er úr nýlegri ferð á Nesjavelli í maí 2015